Fotbolti.net
Eyþór Daði Kjartansson
Pepsi-Max deild kvenna
Hásteinsvöllur
ÍBV
ÍBV
2 - 4
Valur
Valur
Viktorija Zaicikova 14'1 - 01 - 124' Sigríður Lára Garðarsdóttir1 - 244' Lillý Rut Hlynsdóttir1 - 348' Thelma Sól Óðinsdóttir (sjm)Delaney Baie Pridham 61'2 - 32 - 485' Bergdís Fanney Einarsdóttir
Dómari: Óli Njáll Ingólfsson

SKÝRSLAN: Valskonur sóttu 3 stig til Vestmannaeyja

Hvað réði úrslitum?

Leikurinn var mjög kaflaskiptur, ÍBV voru betri fyrstu 25 síðan tók Valur yfir leikinn í 25 mínútur. ÍBV kom sér svo aftur inn í leikinn en fjórða mark Valsara kláraði leikinn.

Bestu leikmenn

1. Lillý Rut Hlynsdóttir

Erfitt að velja í dag en Lillý skoraði og var mjög fín í vörninni. Fannst Valsliðið sem heild vera mjög sterkt en erfitt að finna einhverja til að benda á sem besta í dag.

2. Dóra María Lárusdóttir

Stjórnaði spili Vals og tók föst leikatriði sem voru mjög hættuleg í dag, enda komu tvö mörk upp úr því.

Atvikið

Fjórða mark Vals sem Bergdís Fanney skorar gerir alveg út um leikinn. ÍBV voru búnar að minnka muninn í 2-3 og voru alveg líklegar í að jafna leikinn.

Hvað þýða úrslitin?

Valskonur eru enn ósigraðar og fara á topp deildarinnar með 10 stig. ÍBV tapa enn einum leiknum sem þær eru að spila mjög vel og það er með ólíkindum að þær séu með aðeins 3 stig.

Vondur dagur

Elín Metta verður að taka það á sig. Hún slapp í gegn nokkrum sinnum og klúðraði færum þar sem hún vön að klára. Hún átti ekki lélegan leik en hún ætti að hafa skorað allavega 2 mörk í þessum leik. Spurning hvort það sé að trufla hana að hún hefur ekki enn skorað á tímabilinu?

Dómarinn - 4

Margir skrýtnir dómar í báðar áttir og það var oft eins og hann nennti ekki að spjalda leikmenn. Mætti líka í hlaupaskóm að dæma sem er gult spjald frá mér.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.