Fotbolti.net
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Pepsi Max-deild karla
Dalvíkurvöllur
Gluggaveður, 10° sól en köld gola
KA
KA
0 - 1
Valur
Valur
Jonathan Kevin C. Hendrickx (misnotað víti) 45'75' Patrick Pedersen (misnotað víti)0 - 177' Patrick PedersenSebastiaan Brebels (misnotað víti) 82'
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Vítin enn KA mönnum að falli

Hvað réði úrslitum?

Fyrri hálfleikur var galopinn. KA menn byrjuðu leikinn mun betur en náðu ekki að nýta sér það, Hendrickx klúðrar síðan vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks. Bæði lið klúðruðu síðan einu víti hvor í síðari hálfleik. Valur er hinsvegar með eitt stykki Patrick Pedersen sem má ekki skilja einan eftir fyrir framan opið markið.

Bestu leikmenn

1. Hannes Þór Halldórsson

Ver víti og KA menn komust í góð færi sem Hannes varði vel.

2. Patrick Pedersen

Þrátt fyrir að klúðra víti þá skorar hann markið sem tryggði Val stigin þrjú.

Atvikið

Það gengur ekkert hjá KA mönnum á vítapunktinum, það er ekki bara eitt atvik heldur tvö, TVÖ víti sem fóru forgörðum í dag hjá KA mönnum.

Hvað þýða úrslitin?

Valur styrkir stöðu sína á toppi deildarinnar en þeir eru nú komnir með 23 stig úr 10 leikjum. KA er áfram í 3. sæti með 16 stig í bili að minnsta kosti.

Vondur dagur

Verður maður ekki bara að segja vítanýting KA manna! Varð þeim af falli í dag. Það hjálpar andstæðingum þeirra bara orðið að KA fái víti.

Dómarinn - 8

Hafði bara góð tök á leiknum. Einhverjir halda kannski að þrjú víti sé full mikið en ég held að þau hafi bara verið öll verðskulduð.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.