Fotbolti.net
Arnar Daði Arnarsson
Arnar Daði Arnarsson
Pepsi Max-deild karla
Samsungvöllurinn
Stjarnan
Stjarnan
2 - 1
HK
HK
Hilmar Árni Halldórsson 24'1 - 0Emil Atlason 30'2 - 02 - 174' Stefan Alexander LjubicicHilmar Árni Halldórsson (misnotað víti) 75'
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Áhorfendur: 587

SKÝRSLAN: Stjarnan skellti HK í fallsætið

Hvað réði úrslitum?

Yfirburðir Stjörnunnar í fyrri hálfleik gerðu gæfumuninn þegar upp var staðið.

Bestu leikmenn

1. Heiðar Ægisson

Heilt yfir var frammistaða Stjörnuliðsins góð í dag og framlag leikmanna mikið. Hægri vængur Stjörnunnar fær hinsvegar útnefninguna í dag. Heiðar var öruggur í sínum aðgerðum og lagði upp eitt af mörkum Stjörnunnar.

2. Þorsteinn Már Ragnarsson

Þorsteinn var sprækur á hægri vængnum og lagði upp eitt af mörkum Stjörnunnar. Stjarnan dældi mörgum boltum upp hægri vænginn og var Þorsteinn því í stóru hlutverki sóknarlega.

Atvikið

Þórarinn Ingi lék allar mínútur leiksins en þetta er fyrsti byrjunarliðsleikur Þórarins frá 23. júní árið 2019 er hann sleit krossband gegn Fylki.

Hvað þýða úrslitin?

Stjarnan situr í 8. sæti deildarinnar með 10 stig og eru taplausir í síðustu þremur leikjum. HK fer hinsvegar í fallsætið eftir leik dagsins.

Vondur dagur

Valgeir Valgeirsson var ekki líkur sjálfum sér í dag. Lýsandi dæmi fyrir hans leik var þegar hann fékk ágætis tækifæri innan teigs Stjörnunnar en rann í skot tilraun sinni. Arnþór Ari var einnig langt frá sínu besta.

Dómarinn - 8

Ekkert við Ívar Orra að sakast í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.