Fotbolti.net
Hafþór Bjarki Guðmundsson
Pepsi Max-deild karla
Würth völlurinn
Sól, hiti og hægur vindur
Fylkir
Fylkir
3 - 1
ÍA
ÍA
0 - 14' Gísli Laxdal UnnarssonHelgi Valur Daníelsson 23'1 - 1Óskar Borgþórsson 53'2 - 1Dagur Dan Þórhallsson 59'3 - 1
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson
Áhorfendur: 848

SKÝRSLAN: Yfirburðir Fylkis í Árbænum er Skagamenn tapa enn

Hvað réði úrslitum?

Fylkir voru mikið betri aðilinn allan tímann og kláruðu leikinn alveg í síðari hálfleik. ÍA áttu ekki færi fyrstu 20 mínúturnar af seinni hálfleik og skoruðu úr sínu eina færi í fyrri.

Bestu leikmenn

1. Helgi Valur Daníelsson (Fylkir)

Sá gamli spilaði eins og hann væri aftur orðinn 25 ára. Ruglað hversu góður hann var í dag og reynslan hans sást vel í kringum unga leikmenn ÍA.

2. Óskar Borgþórsson (Fylkir)

Strákur fæddur 2003 sem var virkilega öflugur bæði í sókn og vörn fyrir Fylki. Fyrsti byrjunarliðsleikurinn hans og hann nældi sér í mark, vildi alltaf fá boltann og fullur sjálfstrausts. Jordan Brown var næstur í röðinni.

Atvikið

Þegar Fylkir jafnar leikinn fara þeir að sækja alveg á hundrað. ÍA gera vel að ná að halda í jafntefli í hálfleik en eru í engu kontról á neinum punkti í leiknum eftir jöfnunarmarkið.

Hvað þýða úrslitin?

Fylkir eru komnir í 7. sæti með 10 stig, einu sæti ofar en þeir voru. Fara með sigur inn í bikarleikinn gegn Úlfunum.

ÍA halda sér á botninum ennþá með 5 stig. Fjórði tapleikur þeirra í röð.

Vondur dagur

Allt ÍA liðið hreinlega var lélegt í dag, slappar sendingar, lítil samskipti og mistök í varnarlínunni sem og hjá Dino í markinu. Myndi líklegast þurfa að velja á milli svona 8 leikmanna um þennan titil en liðið yfir höfuð á þetta fyrir utan Hákon Inga sem var ágætur á meðan hann var inná.

Dómarinn - 8

Dæmdi leikinn vel, gef honum sterka áttu fyrir þetta.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.