SKÝRSLAN: Óvænt jafntefli á Hlíðarenda
Hvað réði úrslitum?
Valskonur voru ekki góðar í dag, skora heppnismark í byrjun leiks og ætluðu bara að verjast og halda út. Gestirnir fengu svo óvænt víti í byrjun seinni hálfleiks og jöfnuðu og héldu Valskonum alveg í skefjum út leikinn. Góð barátta og vinnusemi í gestunum tryggði stigið fyrir þær.
Bestu leikmenn
1. Arna Sif Ásgrímsdóttir
Mér fannst hún skara fram úr hjá Þór/KA í dag. Mjög solid varnarlega en Valskonur náðu lítið sem ekkert að gera sóknarlega. Hún var líka góð í að bera boltann upp völlinn.
2. Saga Líf Sigurðardóttir
Enginn sem kallar sérstaklega á að vera valinn næst-besti maður leiksins en ætla að gefa Sögu þetta í dag. Hún var hörkudugleg á miðjunni, var með góðar staðsetningar á vellinum og barðist eins og ljón.
Atvikið
Vítið sem Þór/KA fékk strax á fyrstu mínútu seinni hálfleiks sem Margrét skoraði örugglega úr. Þetta sló Val alveg út af laginu og mér fannst gestirnir bara styrkjast við markið. Valsmenn eru óánægðir með dóminn en ég þarf að fá að skoða þetta aftur til að geta tekið ákvörðun.
Hvað þýða úrslitin?
Valur er enn í 2. sæti með 13 stig og Þór/KA áfram í 8. sæti með 7 stig.
Vondur dagur
Enginn einn leikmaður sem ég ætla að henda undir rútuna. Skrifa þetta bara á Valsliðið, þær geta gert betur en þetta.
Dómarinn - 8
Ágætis leikur hjá tríóinu í dag að mínu mati. Leyfði leiknum að fljóta vel sem ég er hrifin af. Spurning samt með vítadóminn, mér fannst bæði hægt að dæma víti og sleppa því, svo er spurning hvort þetta hafi verið fyrir utan teig. Ég þarf eiginlega að fá að sjá þetta aftur til að taka ákvörðun - en á meðan leyfi ég dómaranum að njóta vafans.



