Fotbolti.net
Brynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Pepsi-Max deild kvenna
Eimskipsvöllurinn
Rigning og grátt. 9 stiga gráður.
Þróttur R.
Þróttur R.
2 - 4
Fylkir
Fylkir
Shaelan Grace Murison Brown 5'1 - 01 - 113' Bryndís Arna Níelsdóttir 1 - 243' Þórdís Elva Ágústsdóttir1 - 355' Bryndís Arna Níelsdóttir 1 - 467' Jelena Tinna Kujundzic (sjm)Ólöf Sigríður Kristinsdóttir 96'2 - 4
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson

SKÝRSLAN: Fylkir svaraði vel í Laugardalnum

Hvað réði úrslitum?

Fylkir náði að svara vel eftir að hafa lent snemma undir. Þróttur fékk mikið af færum en nýtti þau ekki vel.

Bestu leikmenn

1. Bryndís Arna Níelsdóttir (Fylkir)

Skoraði tvö mörk í sigurleik. Átti mjög flottan leik og skoraði flott mörk.

2. Sæunn Björnsdóttir (Fylkir)

Átti tvær stoðsendingar í flottum sigri.

Atvikið

Það var lítið af spennandi atvikum í leiknum. Kannski það mest spennandi var að fá tvö mörk frá báðum liðum snemma í leiknum.

Hvað þýða úrslitin?

Fylkir fer upp í áttunda sæti í deildinni með átta stig. Þróttur R. fer niður um eitt sæti og er núna í fimmta sæti með níu stig.

Vondur dagur

Vörnin hjá Þrótti var afar slök í dag. Fylkir var mikið að gefa fyrirgjafir og vörn Þróttar átti ekki mikin séns í þær. Shaelan Grace var líka slök í leiknum. Þrátt fyrir mark á fimmtu mínútu þá klúðraði hún mikið af færum í leiknum.

Dómarinn - 6.5

Dæmdi lítið í þessum leik. Bara tvö gul spjöld gefin í þessum leik og það fyrra á 91. mínútu. Mikið af peysutogum og þannig brot sem voru bara hunsuð. Of mikill uppbótartími.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.