SKÝRSLAN: Harka, átök, spjöld og tuð er Flóki bjargaði stigi fyrir KR
Hvað réði úrslitum?
Sanngjarnt jafntefli ef horft er í heildina. KR var slegið út af laginu með marki Víkings í byrjun leiks en verðskuldaði að jafna leikinn. Skemmtilegur leikur og mikið um átök.
Bestu leikmenn
1. Karl Friðleifur Gunnarsson (Víkingur)
Kalli var frábær í leiknum og naut sín í vængbakverðinum. KR-ingar voru í vandræðum með að leysa hlaup hans upp völlinn.
2. Ægir Jarl Jónasson (KR)
Virkilega flottur á miðjunni og var öflugur bæði varnar- og sóknarlega. Ægir er að finna sig vel inn á miðjunni.
Atvikið
Þessi reitur er auðveldur í dag. Jöfnunarmark Kristjáns Flóka. Frábær og snögg sókn. Kiddi Jóns fær boltann úti vinstra megin, sker boltann út í teiginn og Flóki klárar með geggjuðu skoti sláin inn!
Hvað þýða úrslitin?
Víkingur er nú fjórum stigum á eftir Val á toppnum og á enn leik til góða og er enn taplaust. KR er taplaust í síðustu fimm leikjum og hefur náð í ellefu stig úr þeim leikjum.
Vondur dagur
Alltaf gaman að fá að henda einhverjum fyrir rútuna... Er ekki best að segja að Óskar Örn hafi oft átt betri daga sóknarlega?
Dómarinn - 7
Krefjandi leikur og ágætlega dæmdur. Gaman að sjá baráttu reynslumikilla leikmanna og það var talsverð harka leyfð í leiknum. Mikið um tuð út í dómarann sem fylgir spennuleikjum þar sem mikið er undir.



