Fotbolti.net
Sigríður Dröfn Auðunsdóttir
Pepsi-Max deild kvenna
Samsungvöllurinn
Stjarnan
Stjarnan
3 - 0
ÍBV
ÍBV
Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir 13'1 - 054' Delaney Baie Pridham (misnotað víti)Betsy Doon Hassett 68'2 - 0Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir 74'3 - 0Málfríður Erna Sigurðardóttir 89'
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson

SKÝRSLAN: Stjarnan með yfirburði gegn ÍBV

Hvað réði úrslitum?

Stjörnukonur nýttu færin sín vel og voru bara betri en ÍBV í dag.

Bestu leikmenn

1. Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir

Hildigunnur var mjög öflug í dag og skorar 2 mörk. Hún nýtti færin sín vel og skapaði oft usla í vörn ÍBV með hraða sínum.

2. Birta Guðlaugsdóttir

Birta nýtti heldur betur tækifærið! Hún var mjög örugg í markinu í dag og kórónaði svo góða frammistöðu með því að verja víti á mikilvægum tímapunkti í stöðunni 1-0.

Atvikið

Vítaspyrnan á 54. mínútu. Eyjakonur höfðu legið á Stjörnukonum og fá vítaspyrnu. Birta ver spyrnuna frá Delaney Baie.

Hvað þýða úrslitin?

Stjarnan hoppar upp í 4. sæti deildarinnar og nær í fyrsta sinn í sumar að tengja saman tvo sigra. Þær eiga hinsvegar erfitt verkefni fyrir höndum í næstu umferð þegar þær kíkja í heimsókn á Kópavogsvöll.
ÍBV situr aftur á móti í 7. sætinu eftir leiki dagsins. En deildin er mjög jöfn og einungis þrjú stig eru á milli liðanna í 4. og 9. sæti.

Vondur dagur

Delaney Baie Pridham fær þetta í dag, það sást lítið til hennar í leiknum og svo klúðrar hún vítaspyrnu á mikilvægum tímapunkti þar sem hún hefði getað jafnað leikinn.

Dómarinn - 7

Fínn leikur hjá Ásmundi.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.