SKÝRSLAN: Þór kláraði Þrótt í síðari hálfleik
Hvað réði úrslitum?
Þróttarar voru sprækir í fyrri hálfleik en fengu á sig vítaspyrnu og þriðja markið upp úr henni og Þórsararnir gengu á lagið og kláruðu þetta nokkuð sannfærandi.
Bestu leikmenn
1. Fannar Daði Malmquist Einarsson
Skoraði tvö flott mörk. Það var mikið líf í mönnum framávið og Fannar engin undantekning.
2. Ólafur Aron Pétursson
Lagði upp fyrsta markið á Fannar með stórkostlegri sendingu rétt fyrir aftan miðju í gegn á Fannar og skoraði úr vítaspyrnunni og almennt flottur á miðjunni.
Atvikið
Þórsarar fá vítaspyrnu í upphafi síðari hálfleiks og það virtist taka allan mátt úr Þróttara liðinu og Þórsarar kláruðu leikinn.
Hvað þýða úrslitin?
Þór fer upp í 6. sæti með 15 stig, þetta er jöfn deild, 8 stig niður í fallsæti og 7 stig upp í 2. sætið. Þróttarar sitja í næst neðsta sætinu með 7 stig.
Vondur dagur
Hausinn á Þróttaraliðinu virtist fara eftir vítaspyrnuna. Þeir voru sprækir í fyrri hálfleik en það gekk illa hjá þeim eftir þriðja markið og Þórsarar gengu á lagið.
Dómarinn - 8
Hann átti bara góðan dag. Hann dæmdi vítaspyrnuna sem var bara hárréttur dómur, annars fór ekki mikið fyrir honum sem er yfirleitt bara gott merki.


