SKÝRSLAN: Sigurganga ÍBV á enda en Gróttumenn að byrja sína
Hvað réði úrslitum?
Grótta skoraði snemma í seinni hálfleiknum og varðist vel eftir það. ÍBV fékk úr litlu að moða, en sóknarleikur þeirra var ekki upp á marga fiska.
Bestu leikmenn
1. Björn Axel Guðjónsson (Grótta)
Var mjög öflugur í dag og bjó í raun til sigurmarkið með stórkostlegri sendingu í gegn.
2. Axel Sigurðarson (Grótta)
Var mjög líflegur í þann tíma sem hann var inn á og skoraði markið sem skipti öllu máli.
Atvikið
Sigurmarkið. Frábært spil hjá Gróttu sem endaði á því að skilja liðin að.
Hvað þýða úrslitin?
Sigurganga ÍBV er á enda og Grótta er mögulega að hefja sína eigin sigurgöngu. Grótta er núna búin að vinna tvo leiki í röð og er í áttunda sæti. ÍBV er áfram í öðru sæti.
Vondur dagur
Verð að setja þetta á Tómas Bent Magnússon. Fékk kjörið tækifæri til að skora undir lokin en setti boltann fram hjá. Var ekki alveg að finna sig á miðsvæðinu. Sito hefur líka oft átt betri leiki, rétt eins og flestir sóknarleikmenn ÍBV.
Dómarinn - 8
Bara mjög vel dæmdur leikur heilt yfir.



