Fotbolti.net
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Pepsi Max-deild karla
Würth völlurinn
Fylkir
Fylkir
1 - 2
HK
HK
Daði Ólafsson 31'1 - 01 - 160' Birnir Snær Ingason1 - 273' Martin Rauschenberg Brorsen
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Áhorfendur: 780
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Færanýting Fylkis varð til þess að HK vann lífsnauðsynlegan sigur

Hvað réði úrslitum?

Færanýtingin hjá Fylki var léleg á meðan HK-seiglan lét sjá sig og gestirnir náðu að knýja fram sigur. Fylkismenn áttu að skora mun fleiri mörk og geta verið sárir með þessa niðurstöðu.

Bestu leikmenn

1. Birkir Valur Jónsson (HK)

Bjargaði í tvígang á línu, þú gerir ekkert mikið betri hluti sem varnarmaður. Átti þá fyrirgjöfina sem býrt til jöfnunarmarkið.

2. Martin Rauschenberg (HK)

Nokkuð traustur í vörninni og skoraði sigurmarkið.

Atvikið

Línubjarganirnar. Fylkir fékk nokkur dauðfæri í leiknum og í tvígang bjargaði Birkir Valur á línu.

Hvað þýða úrslitin?

HK færist nær pakkanum fyrir ofan og hefði verið í allskonar vandræðum ef þessi leikur hefði tapast. Tvö stig skilja liðin að en næstu leikir liðanna eru eftir fjóra daga.

Vondur dagur

Djair og Orri Hrafn. Voru ekkert alslakir úti á vellinum en þeir verða að skora úr dauðafærum.

Dómarinn - 8

Jóhann Ingi var bara nokkuð flottur í dag. Ekkert stórt sem hann missti eða sleppti.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.