Fotbolti.net
Alexandra Bía Sumarliðadóttir
Pepsi-Max deild kvenna
Samsungvöllurinn
Nývökvað gervigras, smá vindur en frekar hlýtt!
Stjarnan
Stjarnan
0 - 2
Valur
Valur
0 - 172' Mary Alice Vignola0 - 282' Lára Kristín Pedersen
Dómari: Arnar Þór Stefánsson
Myndir: Hafrún Guðmundsdóttir

SKÝRSLAN: Valskonur mörðu Stjörnuna

Hvað réði úrslitum?

Eftir steindauðann fyrri hálfleik settu Valskonur í annan gír og voru betra liðið í seinni hállfeiknum. Leikurinn var jafn og lítið var af færum þar til um miðjan seinni hálfleikinn þegar Mary Alice braut ísinn fyrir gestina. Stjörnunni tókst ekki að halda sama dampi í seinni hálfleik og það var það sem varð þeim að falli í dag.

Bestu leikmenn

1. Mary Alice Vignola (Valur)

Öflug í dag í vörn sem sókn. Átti nokkra góða spretti upp völlinn og hleypti engu í gegnum sig varnarlega. Tók málin í sínar hendur þegar Valskonum gekk illa að opna vörn Stjörnunnar og stakk sér í gegn og skoraði laglegt mark sem var þýðingarmikið fyrir Val.

2. Anna María Baldursdóttir (Stjarnan)

Var frábær í vörn Stjörnunnar og gerði Elínu Mettu ansi erfitt í kvöld. Það er alltaf mikil ró yfir Önnu Maríu og hún gerir leikmennina í kringum sig líka betri.

Atvikið

Á 17. mínútu átti Gyða Kristín gullfallegt skot fyrir utan teig sem fór í slánna og niður, og þaðan í Söndru en Stjörnufólk sá boltann inni. Dómarar leiksins töldu svo ekki vera en þetta var mjög tæpt og hefði getað breytt leiknum.

Hvað þýða úrslitin?

Valskonur halda sér í toppsætinu með 2 stiga forskot á Breiðablik sem sigraði Fylki í kvöld.

Stjarnan fer í 6. sætið og tapar öðrum leiknum sínum í röð eftir að hafa verið á góðu skriði.

Vondur dagur

Ekki hægt að setja þetta á einhvern einn leikmann, en sóknarleikur beggja liða var ekki góður í fyrri hálfleik.

Dómarinn - 7

Ekki mikið hægt að setja út á Arnar Þór í kvöld, það fór ekki mikið fyrir honum og leyfði leiknum að fljóta sem er alltaf jákvætt. Leyfði leikmönnum stundum að komast upp með aðeins of mikið út á velli og hefði getað dæmt vítaspyrnu fyrir Val í seinni hálfleik þegar Ásdís Karen er tekin niður. Maður hefur oft séð dæmt víti fyrir minni sakir en miðað við línuna sem hann var með úti á vellinum þá var þetta svo sem í takt við hana. Eins vildi Stjarnan fá mark þegar skot Gyðu Kristínar fór í slánna og niður en aðstoðardómarinn var í betri stöðu til að sjá það en Arnar sjálfur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.