Fotbolti.net
Anton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
Pepsi Max-deild karla
Domusnovavöllurinn
Toppaðstæður. Grasið blautt og sól skýn.
Leiknir R.
Leiknir R.
2 - 0
ÍA
ÍA
Sævar Atli Magnússon 19'1 - 0Hlynur Helgi Arngrímsson 65'Andres Ramiro Escobar Diaz 67'2 - 0
Dómari: Þorvaldur Árnason
Áhorfendur: 486
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

SKÝRSLAN: Erfiðasti útivöllur Pepsí Max-deildarinnar

Hvað réði úrslitum?

Leiknismenn skoruðu mörkin. Mikil stöðubarátta inn á vellinum í kvöld sem Leiknismenn unnu. Staðan í hálfleik hefði geta verið 4-0 fyrir Leiknismönnum. Seinni hálfleikurinn var aðeins jafnari og skagamann reyndu vissulega á nokkrum köfum í kvöld en inn vildi boltinn ekki.

Bestu leikmenn

1. Sævar Atli Magnússon (Leiknir R)

Sævar Atli er að leiða þetta Leiknislið. Átti þátt í flestum sóknum Leiknis í kvöld og var að koma sér í færi fyrir framan mark ÍA. Skoraði eitt og lagði upp seinna á Mango Escobar.

2. Manga Escobar (Leiknir R)

Manga Escobar er vaknaður virðist vera. Var frábær úti á væng hjá Leikni í kvöld og áttu Skagamenn ekki séns í hann þegar hann fór á ferðina. Frábært einstaklingsframtak í seinna marki leiksins í kvöld þegar hann gulltrygði sigurinn fyrir Leiknismenn.

Atvikið

Átti Sindri að fá rautt? Ósvarl Jarl fékk boltann á vinstri kanntinum og Sindri Snær Magnússon fer í ruddalega tæklingu og fékk gult spjald en liturinn hefði svo sannarlega getað verið annar.

Hvað þýða úrslitin?

Leiknismenn eru komnir upp í sjötta sæti deildarinnar en lið er komið með 14.stig og Skagamenn sitja á botni deildarinnar með sex stig og eru komnir með bakið upp við vegg.

Vondur dagur

Skagamenn - Það gengur ekkert hjá Skagamönnum og er liðið komið með bakið uppvið vegg og verkefni Jóa Kalla er verðugt að reyna snúa þessu gengi við. Reyndu í kvöld og fengu tvö góð færi undir lokin en inn vildi boltinn ekki.

Dómarinn - 8.5

Þorvaldur Árnason var geggjaður í dag fyrir utan vafatriðið með tæklinguna hjá Sindra Snæ á Ósvarl.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.