SKÝRSLAN: Seigla og reynsla skóp KR sigur á Meistaravöllum
Hvað réði úrslitum?
KR voru frábærir fyrstu tuttugu mínútur leiksins og réðu öllu í leiknum. Hefðu með réttu getað skorað tvö til þrjú mörk til viðbótar en vantaði endapunktinn á sóknirnar. Keflvíkingar reyndu að skapa sér stöður með því að nýta skyndisóknir en voru ekki næginlega öflugir til þess að kreista fram jöfnunarmarkið. Sigurinn í heildina séð sanngjarn að mati fréttaritara þótt Rúnar Kristinsson þjálfari KR hafi verið ósáttur með flest allt í leik sinna manna.
Bestu leikmenn
1. Kristinn Jónsson
Kristinn var mjög öflugur í sínum hlaupum og skapaði reglulega hættu með hraða sínum og sendingum.
2. Marley Blair
Marley Blair fannst mér vera einstaklega fjörugur í leik Keflvíkinga og lét fara mikið fyrir sér í leiknum.
Atvikið
Á 7 mínútu fengu KR hornspyrnu. Sindri markmaður Keflvíkinga fer í úthlaup og nær að kýla boltann út í teig þar sem Arnþór Ingi tekur boltann viðstöðulaust og neglir honum slánna inn. Geggjað mark!
Hvað þýða úrslitin?
KR nær að halda sér í Evrópubaráttu með sínum öðrum sigri í röð og eru i 4 sæti með 21 stig. Keflvíkingar höfðu ekki tapað í fjórum leikum í röð fyrir kvöldið í kvöld og sitja í 7. sæti með 13 stig.
Vondur dagur
Kannski ósanngjarnt að setja þetta á Joey Gibbs en hann sást varla í leiknum og þegar hann sást gerði hann lítið.
Dómarinn - 8
Ekkert út á dómarann að setja.



