Fotbolti.net
Elvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Pepsi Max-deild karla
Würth völlurinn
Skýjað og 11 gráður
Fylkir
Fylkir
2 - 1
KA
KA
Orri Sveinn Stefánsson 31'1 - 0Orri Hrafn Kjartansson 59'2 - 02 - 164' Hallgrímur Mar Steingrímsson
Dómari: Erlendur Eiríksson
Áhorfendur: 732
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: KA lenti í Orrahríð

Hvað réði úrslitum?

Fylkismenn voru liprari og ferskari stærstan hluta leiksins, KA var talsvert meira með boltann en fremstu menn heimamanna voru sífellt að skapa vandamál fyrir gestina sem voru nokkuð þunglamalegir. Bæði lið fengu tækifæri til að skora meira og KA komst skuggalega nálægt jöfnunarmarki í blálokin.

Bestu leikmenn

1. Orri Hrafn Kjartansson - Fylkir

Var stórskemmtilegur allan leikinn og bjó till alls konar vandræði fyrir gestina. Sigurmarkið hans var líka einkar glæsilegt. Auðvelt val á manni leiksins.

2. Orri Sveinn Stefánsson - Fylkir

Öflugur í vörninni og kom sér einnig á blað.

Atvikið

KA þjarmaði að Fylki í lokin í örvæntingarfullri leit að jöfnunarmarki. Alveg í blálokin kom skot sem virtist vera á leið inn en stöngin bjargaði Fylkismönnum.

Hvað þýða úrslitin?

KA er án sigurs í fjórum leikjum í röð og hefur stimplað sig úr baráttunni meðal efstu liða deildarinnar. Eftir tap gegn HK náði Fylkir svaðalega mikilvægum stigum, Árbæingar spyrna sig frá fallbaráttunni, í bili allavega.

Vondur dagur

Varnarlína KA fann sig ekki. Lítið kom út úr Hauki Heiðari Haukssyni og þá var Daníel Hafsteinsson langt frá sínu besta. KA þarf meira frá hæfileikaríkum leikmanni eins og hann er.

Dómarinn - 10

Málarameistarinn og hans teymi sýndu frábæra frammistöðu. Björn Kuipers okkar Íslendinga dæmdi leikinn óaðfinnanlega.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.