SKÝRSLAN: Markalaust í Kórnum
Hvað réði úrslitum?
Báðum liðum tókst ekki að koma boltanum inn fyrir línuna. Leikurinn var hraður og mikil ákefð var á vellinum en það voru nánast engin færi og uppskeran markalaust jafntefli.
Bestu leikmenn
1. Guðmundur Þór Júlíusson (HK)
Frábær dagur hjá fyrirliðanum í kvöld. Skallaði hvern boltann á fætur öðrum frá og var með Nikolaj Hansen í vasanum ásamt Martin Rauschenberg
2. Martin Rauschenberg (HK)
Var einnig frábær í vörninni hliðiná Gumma Júl og hélt Nikolaj Hansen í skefjum.
Atvikið
Átti HK að fá víti í fyrri hálfleik?
Birkir Valur fékk boltann út til hægri og kom með fyrirgjöfina fyrir ætlaða Stefán Ljubicic og Stefán fellur inn á teignum eftir að Kári togaði hann niður en Sigurður Hjörtur dæmdi ekkert.
Birkir Valur fékk boltann út til hægri og kom með fyrirgjöfina fyrir ætlaða Stefán Ljubicic og Stefán fellur inn á teignum eftir að Kári togaði hann niður en Sigurður Hjörtur dæmdi ekkert.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það að bæði lið fá eitt stig á töfluna. HK er áfram í 11.sæti deildarinnar með 10 stig og Víkingar komast upp í annað sæti deildarinnar en liðið er komið með 23.stig, fjórum stigum á eftir toppliði Vals
Vondur dagur
Sóknarleikur beggja liða - Það voru ekki mikil gæði á síðasta þriðjung vallarsins hjá báðum liðum í kvöld og liðin sköpuðu sér lítið sem ekkert.
Dómarinn - 6
Línan hjá Sigurði Þrastarssyni var mjög furðuleg í kvöld og var frammistaða hans í kvöld ekkert spes.



