SKÝRSLAN: Allt jafnt á Meistaravöllum
Hvað réði úrslitum?
Frábær byrjun á leiknum þar sem við fengum 2 mörk á fyrsta korterinu en svo róaðist leikurinn örlítið og liðin fóru sanngjarnt jöfn inn í hlé.
Fengum örlítin hita í seinni hálfleik þar sem Gummi Kri fékk rautt m.a. en þá þéttu FH bara raðirnar og mögulega sanngjarnt jafntefli þegar uppi er staðið þó svo KR séu kannski örlítið svekktari.
Bestu leikmenn
1. Kennie Chopart
Kennie Chopart var virkilega öflugur í kvöld. Lagði upp jöfnunarmark KR með mikilli baráttu og elju og hefði átt að leggja upp sigurmark líka. Var virkilega ógnandi.
2. Matthias Vilhjálmsson
Var frábær í liði FH. Skoraði mark hafnarfjarðarliðins og var svo í baráttunni fyrir sitt lið allan leikinn og vann hvern skallaboltann á fætur öðrum. Færðist neðar þegar Gummi fékk rautt og leysti það vel
Atvikið
KR fékk dauðafæri til þess að komast yfir í seinni hálfleik þegar Kennie Chopart átti frábæra sendingu fyrir mark FH en bæði Kristján Flóki og Kjartan Henry misstu af boltanum.
Hvað þýða úrslitin?
Bæði lið fá sitthvort stigið.
KR heldur 5.sætinu áfram en FH detta niður um sæti og sitja nú í 7.sætinu.
Vondur dagur
Guðmundur Kristjánsson.
Fékk 2 gul og rautt en sem betur fer kostaði það FH ekki í kvöld.
Kristján Flóki Finnbogason fær líka pláss hérna en hann var nær ósýnilegur frammi hjá KR.
Dómarinn - 7
Fannst þetta vel dæmt hjá Þorvaldi Árnasyni og co.
Var hræddur um að hann væri að missa þetta í vitleysu í seinni hálfleik en leysti vel úr því og skilaði dómarateymið góðri frammistöðu.



