SKÝRSLAN: Jafntefli í leik Keflavíkur og Fylkis í endurkomu Ragga Sig
Hvað réði úrslitum?
Erfitt að horfa framhjá yfirburðum Fylkis í fyrri hálfleik þar sem þeir hefðu að ósekju átt að skora fleiri mörk. Keflvíkingar sýndu þó fórnfýsi í varnarleik sínum og unnu sig hægt og bítandi inn í leikinn og voru svo ef eitthvað er sterkari aðilinn í seinni hálfleik og unnu þar fyrir stiginu.
Bestu leikmenn
1. Nacho Heras
Miðvörðurinn knái fær þetta fyrir nokkrar lykiltæklingar í seinni hálfleik þegar Fylkismenn sóttu hratt. Hefði verið auðvelt að líta framhjá honum en augnbliksgæði eru það sem ráða úrlitum í svona leikjum eins og tekið verður fram í atviki leiksins hér örlítið neðar.
2. Orri Hrafn Kjartansson
Skoraði mark Fylkis og olli talsverðum usla eins og reyndar fleiri í Fylkisliðinu í fyrri hálfleik. Fór þó minna fyrir honum sem og öðrum framarlega á vellinum hjá Fylki í þeim síðari en mörk telja.
Atvikið
Eftir tæplega klukkustundarleik hefði Fylkir getað gert út um leikinn. Fyrirgjöf berst inn á teiginn á Arnór Borg sem stendur 50 cm frá marki og getur varla annað en skorað. Nacho Heras var á öðru máli og nær á einvern undraverðan hátt að reka tánna í boltann og fipa þar með Arnór sem setti boltann yfir af 50 cm færi.
Hvað þýða úrslitin?
Þau þýða það að pakkinn á botninum þéttist enn frekar þar sem ÍA vann HK á sama tíma. Keflavík fer reyndar uppfyrir Stjörnuna í 8.sæti deildarinnar með 17 stig en Fylkir er áfram í því 10. með 16 stig. Þar fyrir neðan bíða svo HK 13 stig og ÍA 12 stig.
Vondur dagur
Hefði verið auðvelt að setja Keflavíkurliðið í heild hér ef leikurinn væri 30 mínútur en það er hann ekki og þeir komu sterkir til baka. Það gerðu þeir þó án fyrirliða sín Magnúsar Þórs Magnússonar sem þurfti að fara af velli vegna höfuðmeiðsla eftir aðeins 8 mínútna leik.
Dómarinn - 6
Þetta var allt í lagi hjá Elíasi. Það má þó vera að hann hafi snuðað Keflavík um vítaspyrnu í fyrri hálfleik en læt það liggja á milli hluta og leyfi öðrum að dæma um það.


