SKÝRSLAN: Líflína fyrir ÍA eftir frábæran sigur
Hvað réði úrslitum?
Baráttan og viljinn í liði Skagamanna réði úrslitum í kvöld. Skagamenn unnu leikinn á baráttunni og komu inn af miklum krafti skoruðu eftir aðeins tvær mínútur og voru heilt yfir sterkari aðilinn í fyrri hálfleik. ÍA komst í 2-0 eftir 58.mínútna leik og HKingar minnkuðu muninn í 2-1 og lágu á ÍA en nýttu ekki færin og þriðja mark ÍA drap leikinn.
Bestu leikmenn
1. Alex Davey (ÍA)
Var frábær í vörn ÍA í kvöld og skoraði fyrsta mark liðsins.
2. Ísak Snær Þorvaldsson (ÍA)
Var frábær á miðjunni hjá ÍA í kvöld bæði varnarlega og sóknarlega. Skoraði og lagði upp mark í kvöld.
Atvikið
Sláin inn - Steinar Þorsteinsson tók hornspyrnu og boltinn skallaður frá en boltinn datt fyrir fætur Gísla Laxdal sem smell hitti boltann og boltinn fer í slánna og inn en Helgi Mikael dæmdi ekkert.
Hvað þýða úrslitin?
ÍA heldur líflínu en liðið er enþá á botni deildarinnar með 12.stig aðeins einu stigi á eftir HK og er pakkinn orðinn þéttur þarna á botninum. HK heldur sér í 11.sæti deildarinnar en liðið er með 13 stig.
Vondur dagur
HK - Mættu ekki baráttu Skagamanna og tapaðist leikur HK þar.
Dómarinn - 5.5
Erfiður leikur að dæma



