SKÝRSLAN: Erfiður sigur Fylkis gegn 2. deildar liði Haukum.
Hvað réði úrslitum?
Fylkismenn náðu marki mjög snemma leiksins og voru alltaf með yfirhöndina í leiknum. Haukar náðu þó að jafna metin í byrjun seinni hálfleiks, en það var ekki nóg gegn Pepsí Max deildar liði Fylkis.
Bestu leikmenn
1. Malthe Rasmussen
Átti frábærann leik þar sem hann fiskaði vítaspyrnu og skoraði frábært mark!
2. Tómas Leó Ásgeirsson
Lang bestur í Hauka liðinu. Skoraði eitt mark og maður tók mikið eftir honum í leiknum.
Atvikið
Það var ekki mikið af stórum atvikum í þessum leik. En Fylkis áhorfendur voru ánægðir með að fá víti mjög snemma í leiknum.
Hvað þýða úrslitin?
Fylkismenn halda áfram í 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins á meðan Haukar eru því miður úr leik.
Vondur dagur
Ég tók ekki eftir neinum sem átti vondan leik. Fylkir spiluðu vel gegn Hauka liði sem mætti með læti gegn Fylkir og sýndu virkilega að þeir áttu heima í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.
Dómarinn - 8.5
Fínn leikur hjá dómaranum. Engar stórar ákvarðanir þurfti að taka í þessum leik.



