SKÝRSLAN: Flott frammistaða skilaði Vestra sannfærandi áfram
Hvað réði úrslitum?
Vestramenn voru betri í leiknum og verðskulduðu þennan sigur. Töfrar Nikolaj Madsen komu heimamönnum á bragðið og það var enginn spurning í 2-0 hvort liðið myndi vinna.
Bestu leikmenn
1. Nikolaj Madsen
Braut ísinn með marki úr frábærri aukaspyrnu og bætti svo við öðru aukaspyrnumarki. Mikil gæði í Dananum. Opnunarmarkið var það mark sem skipti mestu máli í þessum sigri.
2. Benedikt V. Warén
Martin Montipo og Serge Fall voru einnig mjög öflugir, það voru þessir fjórir leikmenn sem voru á bakvið mörkin. Benó var síógnandi og átti virkilega góðan leik á vinstri kantinum. Frábær sprettur í markinu sem hann skoraði.
Atvikið
Fyrsta markið. Nikolaj með skot yfir vegginn úr aukaspyrnu.
Hvað þýða úrslitin?
Vestri er kominn í 8-liða úrslit í Mjólkurbikarnum. Þórsarar eru úr leik.
Vondur dagur
Sóknarleikur Þórs í heild sinni var virkilega dapur í dag. Varnarlega þarf að skoða ákvarðanir að brjóta rétt fyrir utan vítateig og varnarleik eftir fast leikatriði hinu megin á vellinum.
Dómarinn - 6
Fannst vera rifið í Aðalgeir inn á teignum í stöðunni 1-0 fyrir Vestra, ef um leikaraskap er að ræða er það klár plús á dómarann. Úti á vellinum var leikstjórnin bara mjög fín.



