SKÝRSLAN: Dómaraskandall og hiti í Breiðholti
Hvað réði úrslitum?
Góð vörn Kórdrengja náði að stöðva sók Mosfellinga mjög vel en leikurinn ræðst á mörkum og seinna mark Kórdrengja átti aldrei að standa. Það er alveg klárlega brotið á Tanis í markinu.
Bestu leikmenn
1. Hákon Ingi Einarsson (Kórdrengir)
Hákon kom að öllu í sókn Kórdrengja í þessum leik og átti meðal annars stoðsendinguna á Þóri í fyrra markinu. Heilt yfir príðis góður leikur hjá honum.
2. Davíð Þór Ásbjörnsson (Kórdrengir)
Var eins og herforingi á miðjunni að stýra spilinu og stöðva sóknir Aftureldingar. Svo á hann nokkurskonar stoðsendingu í seinna markinu.
Atvikið
Seinna mark Kórdrengja. Hornspyrna kemur fyrir þar sem Tanis kemur úr markinu og kýlir boltann frá. Þá kemur Davíð Þór á fleygiferð í hann og tekur hann úr leik. Ekki nóg með það þá er skotið hans Axels svo ótrúlega fallegt að það er ekki hægt annað en að setja þetta í þennan dálk.
Hvað þýða úrslitin?
Kórdrengir sitja enn í 3. sæti nú með 28 stig, 4 stigum á eftir ÍBV og með leik til góða. Þess má geta að þeirra næsti leikur er einmitt á móti ÍBV þannig annars sætis baráttan algjörlega í þeirra höndum
Afturelding er í 9. sæti með 19 stig en alveg 7 stigum á undan Selfoss í því 10. Þannig ólíklegt að þeir þurfi að hafa áhyggjur af falldrauginum.
Afturelding er í 9. sæti með 19 stig en alveg 7 stigum á undan Selfoss í því 10. Þannig ólíklegt að þeir þurfi að hafa áhyggjur af falldrauginum.
Vondur dagur
Sóknarleikur Mosfellinga. Í hvert sinn sem Afturelding virtist vera færa sig ofar upp völlinn og reyna að skapa sér færi þá rann allt nokkurnvegin út í sandinn.
Dómarinn - 4
Maður sá það snemma leiks að Gunnar Oddur ætlaði að leyfa leiknum að fljóta og ekki flauta á of mikið en hann gerir 2 stór mistök í leiknum þar sem boltinn virtist vera fyrir innan í fyrri hálfleik hjá Kórdrengjum en ekki dæmt mark, svo var seinna markið alveg augljóst og klárt brot.



