Leik lokið!
94. mín
Davíð Þór stelur boltanum af Pedro sem rúllar honum svo inn fyrir vörnina á Hákon en skotið hans fer framhjá
93. mín
Sendingin fyrir frá vinstri kanti frá gestunum er á leiðinni á markið en Alexander Pedersen slær boltann í hornspyrnu.
Hornspyrnan ratar svo beint í markspyrnu.
Hornspyrnan ratar svo beint í markspyrnu.
91. mín
Axel Freyr liggur sárkvalinn eftir að hafa fengið högg. Hann var alveg brjálaður yfir að það yrðri ekki dæmt brot á þetta.
89. mín
Hornspyrna heimamanna er á leiðinni á markið en Tanis gerir vel og slær hann frá.
86. mín
Aukaspyrna frá gestunum kemur inn í teig þá hleypur Alexander Pedersen langt út úr teig og virðist klessa á Davíð Þór, Aftureldingar menn klára í opið netið en í þetta skipti dæmir Gunnar aukaspyrnu.
85. mín
InnEgill Darri Makan Þorvaldsson
ÚtAlex Freyr Hilmarsson
84. mín
Þetta var huggulegt skot!
Boltinn færist á Axel Frey fyrir utan teig sem tekur hann viðstöðulaus á lofti en skotið aðeins og laust og Tanis nær að handsama knöttinn.
Boltinn færist á Axel Frey fyrir utan teig sem tekur hann viðstöðulaus á lofti en skotið aðeins og laust og Tanis nær að handsama knöttinn.
83. mín
Mikil harka í leiknum núna, tæklingar fljúga hægri vinstri en Gunnar reynir eins og hann getur að halda spjöldunum í vasanum.
81. mín
Gult spjald
Loic Cédric Mbang Ondo
79. mín
InnGísli Martin Sigurðsson
ÚtArnór Gauti Ragnarsson
78. mín
Athyglisvert innkast hjá Kórdrengjum þar sem maðurinn kastar boltanum inná með snúning þannig að hann rataði beint útaf aftur.
74. mín
Pedro með aukaspyrnu á prýðilegum stað og setur boltann rétt yfir .
73. mín
Maggi er ekki sáttur við dómarann eins og er hann æpir á hann af hliðarlínunni en fær engin svör
70. mín
Kórdrengir spyrja ekki um það. Hornspyrnan kemur fyrir og Tanis lúðrar honum frá en fær mann keyrandi í sig. Axel tekur boltann með sporðdreka sparki og þetta var svo snyrtilegt að það verður bara að leyfa þetta.
MAAAARK!
Axel Freyr Harðarson
Var ekki brotið á Tanis þarna!!Kórdrengir spyrja ekki um það. Hornspyrnan kemur fyrir og Tanis lúðrar honum frá en fær mann keyrandi í sig. Axel tekur boltann með sporðdreka sparki og þetta var svo snyrtilegt að það verður bara að leyfa þetta.
67. mín
InnOskar Wasilewski
ÚtKristófer Óskar Óskarsson
67. mín
InnElmar Kári Enesson Cogic
ÚtJökull Jörvar Þórhallsson
66. mín
Stórhættulegur bolti
Arnór gauti setur boltann í hættusvæðið þar sem Pedro er hársbreydd frá því að ná honum en Alexander er á undan.
Arnór gauti setur boltann í hættusvæðið þar sem Pedro er hársbreydd frá því að ná honum en Alexander er á undan.
63. mín
Hornspyrna fyrir Kórdrengi sem Arnleifur tekur. Fínn bolti á fjær en Gunnlaugur skallar að marki en Tanis gerir vel og kílir frá.
57. mín
InnAxel Freyr Harðarson
ÚtLeonard Sigurðsson
56. mín
Kórdrengir með hornspyrnu á fjær, boltinn skallaður aftur inn sem skapar mikið klafs en dæmd rangstaða.
55. mín
Afturelding hefur legið framarlega á vellinum allar þessar upphafs mínútur seinni hálfleiks og lítur út fyrir að þeir eru mun tilbúnari í slaginn núna.
47. mín
Kristófer Óskar klárar eftir að Alexander Pedersen virtist hafa tekið niður leikmann Aftureldingar en á meðan aðrir báðu um víti þá var Kristófer vakandi og kláraði í opið netið.
Eftir það fer varnarmaður full seint í Kristófer og hann lá eftir í smá stund og það var beðið um spjöld í allskonar litum en ekkert slíkt fór á loft.
MAAAARK!
Kristófer Óskar Óskarsson
Seinni hálfleikur byrjar með látum!!Kristófer Óskar klárar eftir að Alexander Pedersen virtist hafa tekið niður leikmann Aftureldingar en á meðan aðrir báðu um víti þá var Kristófer vakandi og kláraði í opið netið.
Eftir það fer varnarmaður full seint í Kristófer og hann lá eftir í smá stund og það var beðið um spjöld í allskonar litum en ekkert slíkt fór á loft.
46. mín
Leikur hafinn
Þá eru menn aftur komnir inn á völlinn og seinni hálfleikur hafinn. Nú er það Kórdrengir sem byrjar með boltann og Kaleo hljómar
45. mín
Hálfleikur
Þá er blásið til hálfleiks á þessum leik gestirnir átt erfitt með að skapa sér færi og spurning hvort staðan ætti að vera 2-0 en þetta verður allt skoðað seinna.
Núna eru kaffi og kleinur í korter.
Núna eru kaffi og kleinur í korter.
45. mín
+1
Skemmtileg tilþrif frá Davíð Þór sem kemur með hælsendingu upp kantinn en sókninn rennur út í sandinn.
Skemmtileg tilþrif frá Davíð Þór sem kemur með hælsendingu upp kantinn en sókninn rennur út í sandinn.
44. mín
Gult spjald
Leonard Sigurðsson
Fyrir dýfu43. mín
Pedro leitar inn á völlinn en finnur ekkert sem honum líst á þannig hann kemur með bolta inn í teig frá miðlínu sem ratar beint á Alexander í markinu.
39. mín
Þá nær Afturelding einmitt að skapa sér ágætt færi en það var Arnór Gauti og Pedro sem spiluðu vel saman á vinstri kantinum. Pedro stingur svo boltanum inn fyrir en Anton Logi er með of þröngt færi og setur boltann yfir.
36. mín
Afturelding á mjög erfitt með vörn Kórdrengja í þessum fyrri hálfleik. Þeir hafa lítið sem ekkert getað skapað sér almennileg færi þegar þeir koma sér upp völlinn.
33. mín
Þetta var alveg örugglega mark!!
Eftir frábæra aukaspyrnu inn í teig frá Kórdrengjum skapast mikinn darraðadans inn í teig og boltinn skoppast að marki Aftureldingar en þeir hreinsa frá á línunni en frá mínu sjónarhorni var þessi bolti inni.
Eftir frábæra aukaspyrnu inn í teig frá Kórdrengjum skapast mikinn darraðadans inn í teig og boltinn skoppast að marki Aftureldingar en þeir hreinsa frá á línunni en frá mínu sjónarhorni var þessi bolti inni.
30. mín
DAUÐAFÆRI!!
Alveg eins og í markinu kemur Hákon upp hægri kantinn en setur hann núna inn fyrir vorn gestana en Þórir missir boltann frá sér og Tanis tekur hann föstum tökum.
Alveg eins og í markinu kemur Hákon upp hægri kantinn en setur hann núna inn fyrir vorn gestana en Þórir missir boltann frá sér og Tanis tekur hann föstum tökum.
29. mín
Gult spjald
Jökull Jörvar Þórhallsson
Hann hlýddi ekki ræðunni þannig í þetta skipti fær hann það gula27. mín
Jökull Jörvar kemur með flottan bolta inn á Pedro sem gerir rosalega vel að standa af sér mann Kórdrengja sem togar hressilega í hann, boltinn endar svo í hornspyrnu.
Boltinn er djúpur en endar í fótunum á Pedro sem tekur hann viðstöðulausann í gegnum allan pakkann og markspyrna er niðurstaðan.
Boltinn er djúpur en endar í fótunum á Pedro sem tekur hann viðstöðulausann í gegnum allan pakkann og markspyrna er niðurstaðan.
24. mín
Jökull Jörvar fer full seint þarna í tæklinguna og stuðningsmenn heimamanna byðja um það gula en Gunnar gefur honum bara gömlu góðu ræðuna.
18. mín
Ótrúlega mikilvægt úthlaup frá Tanis
Davíð þór kemur með flottan bolta inn fyrir vörn Aftureldingar en Þórir kemst ekki í boltann því Tanis var einfaldlega á undan.
Davíð þór kemur með flottan bolta inn fyrir vörn Aftureldingar en Þórir kemst ekki í boltann því Tanis var einfaldlega á undan.
17. mín
Kórdrengir hafa fengið sjálfstraust af því að skora þetta mark en þeir eru að færa sig töluvert hærra upp völlinn núna.
11. mín
Kórdrengir eftir að hafa verið lítið með boltann í upphafi leiks bruna upp hægri kantinn og Hákon kemur með gullfallegan bolta beint á kollinn á Þóri sem hleypur á nærstöngina og hann gat ekki en að stanga honum inn.
Þess má geta að ég var að fara skrifa að leikurinn hefði farið hægt af stað.
MAAAARK!
Þórir Rafn Þórisson (stoðsending: Hákon Ingi Einarsson)
Alveg gegn gangi leiksins!!Kórdrengir eftir að hafa verið lítið með boltann í upphafi leiks bruna upp hægri kantinn og Hákon kemur með gullfallegan bolta beint á kollinn á Þóri sem hleypur á nærstöngina og hann gat ekki en að stanga honum inn.
Þess má geta að ég var að fara skrifa að leikurinn hefði farið hægt af stað.
9. mín
Afturelding nær að koma sér í fína stöðu við teig heimamanna eftir flott undibúningsspil Pedro en boltinn rennur á Alexander í markinu.
6. mín
Aukaspyrna við miðjan vallahelming Kórdrengja fyrir Aftureldingu sem Pedro tekur en boltinn fer beint aftur fyrir marklínu. Afleit spyrna.
4. mín
Afturelding með langt innkast inná teig, skapast smá darraðadans við víteteigslínuna en boltanum hreinsað frá.
1. mín
Leikur hafinn
Þá er leikurinn farinn af stað og það er Afturelding sem byrja með boltann.
Fyrir leik
Gunnar dómari ætlar ekki að láta reyna á 12 liða fótbolta þetta var víst einhver misskilningur en þeir Conner Rennison og Ísak Atli eru ekki í byrjunarliðunum í kvöld eins og kom fram á leikskýrslu.
Fyrir leik
Síðasti leikur þessa liða endaði í 1-1 jafntefli í Mosfellsbæ. Það var dramatík í þeim leik en þar fékk Davíð Smári þjálfari Kórdrengja að líta rauða spjaldið á 41. mínútu og Þórir Rafn Þórisson fékk sitt annað gula á 90. mínútu. Mörkin í leiknum voru skoruð af Connor Mark Simpson og Patreki Orra Guðjónssyni.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin en samkvæmt skýrslu KSÍ þá eru 12 menn sem byrja hjá báðum liðum.
Ég býst nú bara við 11 á vellinum frá báðum liðum en hver veit hvort Gunnar dómari leiksins ætli að prufa eitthvað nýtt.
Ég býst nú bara við 11 á vellinum frá báðum liðum en hver veit hvort Gunnar dómari leiksins ætli að prufa eitthvað nýtt.
Fyrir leik
Góða kvöldið og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Kórdrengja og Aftureldingar frá Domusnova vellinum




Skýrsla og viðtöl koma svo seinna í kvöld.