Fotbolti.net
Anton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
Lengjudeild karla
Vivaldivöllurinn
Grótta
Grótta
2 - 1
Kórdrengir
Kórdrengir
Valtýr Már Michaelsson 3'1 - 01 - 180' Þórir Rafn ÞórissonPétur Theódór Árnason 86'2 - 1
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: Pétur Theódór hættir ekki að skora

Hvað réði úrslitum?

Grótta komst yfir snemma leiks og eftir það tóku Kórdrengir yfir leikinn án þess þó að ná að skapa sér mörg alvöru færi en loksins á 80 ná Kórdrengir að jafna en Grótta á eitt stykki Pétur Theódór sem skoraði sigurmark leiksins eftir hornspyrnu.

Bestu leikmenn

1. Pétur Theódór Árnason (Grótta)

Pétur skoraði sigurmarkið og fyrir það er hann maður leiksins fyrir mér. Vann vel upp á toppi hjá Gróttu í kvöld og hjálpaði liðinu vel varnarlega.

2. Jón Ívan Rivine (Grótta)

Jón Ívan var rosalega öruggur í marki Gróttumanna í kvöld og þurfti nokkrum sinnum að verja og gerði hann það vel.

Atvikið

Markið sem tryggði Gróttu þrjú stig - Kristófer Orri tók hornspyrnu sem Alexander Pedersen kýldi beint upp í loftið og boltinn rataði til Péturs Theódórs sem skallaði boltann í netið.

Hvað þýða úrslitin?

Þýða lítið fyrir Gróttu. Liðið siglir lignan sjó um miðja deild en liðið er komið upp í fimmta sæti deildarinnar með 26.stig. Kórdrengir eru að missa af Pepsí Max-deildar sætinu en liðið er í þriðja sæti deildinnar sjö stigum á eftir ÍBV.

Vondur dagur

Erfitt að taka einhvern einn en Alexander Pedersen fær þennan dálk. Hefði hugsanlega átt að standa á línunni í sigurmarki Gróttu frekar en að æða út í boltann sem kostaði Kórdrengi.

Dómarinn - 6

Engin stór atvik sem Jóhann Árni þurfti að taka á í kvöld en flautaði full mikið á 50/50 brot í staðin fyrir að leyfa leiknum að fljóta.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.