SKÝRSLAN: Fagnað Fram eftir kvöldi í Safamýrinni
Hvað réði úrslitum?
Löngu innköstin frá Matthíasi reyndust vel í dag. Framarar hafa að auki ótrúlega marga öfluga leikmenn innan sinna raða.
Bestu leikmenn
1. Alexander Már Þorláksson
Spilaði mjög vel í dag og skoraði gott mark
2. Gunnar Geir Gunnlaugsson
Markvörður Selfossar var frábær í kvöld og bjargaði nokkrum sinnum ótrúlega vel.
Atvikið
Bið Framara eftir leik verður að vera atvikið. Menn stóðu saman út á velli og biðu eftir staðfestingu á Nesinu. Það var vel fagnað þegar flautað var af þar.
Hvað þýða úrslitin?
Framarar fagna Pepsi Max sætinu í kvöld!
Selfoss er ennþá í fallbaráttu við Þrótt en sú barátta lítur vel út fyrir þá eins og er.
Selfoss er ennþá í fallbaráttu við Þrótt en sú barátta lítur vel út fyrir þá eins og er.
Vondur dagur
Það er aldrei gott að vera tekinn útaf í hálfleik þannig að við verðum að gefa hinum unga og efnilega Þorláki og Þorsteini Daníel þennan titil í kvöld
Dómarinn - 8,0
Flott frammistaða hjá tríóinu, smá hik í innköstum og hornum. Held að Fram hafi átt að fá víti en heilt yfir flottir.


