SKÝRSLAN: KR kafsigldi Víkinga
Hvað réði úrslitum?
KR settu tóninn strax á 2. mínútu þegar þær skoruðu fyrsta mark leiksins. Á 6. mínútu jóku þær forskotið í 2-0. Þetta var aldrei spurning eftir það. Í stuttu máli réði það úrslitum að KR mætti til leiks frá fyrstu mínútu en Víkingskonur komu sér aldrei inn í leikinn.
Bestu leikmenn
1. Bergdís Fanney Einarsdóttir - KR
Var frábær í kvöld og skoraði fallegasta mark leiksins með föstum skalla eftir góða fyrirgjöf frá Aideen. Mjög spræk í sóknarleik KR og virðist vera að smella vel inn í liðið.
2. Aideen Hogan Keane - KR
Mikill hraði og bjó til hættulegar sóknir fyrir KR. Var sérstaklega góð í fyrri hálfleiknum. Erfitt að taka bara tvær úr liði KR sem var frábært í heild sinni. Thelma, Rebekka og Laufey gera sterkt tilkall en það var lítið að gera í vörninni í dag svo sóknarmennirnir fá kredit.
Atvikið
Mark KR á 2. mínútu leiksins sem gaf tóninn fyrir það sem koma skal. Víkingskonur hófu leikinn en KR unnu boltann og sóttu hornspyrnu og úr því kom markið.
Hvað þýða úrslitin?
KR er áfram í harðri baráttu á toppum við FH og Aftureldingu. FH og Aftureldin sigruðu líka í kvöld svo staðan breytist ekki. FH á toppnum með 35 stig (+25 mörk), Afturelding í 2. sæti með 34 stig (+27 mörk) og KR í þriðja sæti með 33 stig (+22 mörk). KR og Afturelding mætast í mjög mikilvægum leik í næstu umferð. Víkingur R. heldur 4. sætinu og mætir ÍA í næstu umferð.
Vondur dagur
Vondur dagur hjá Víkingsliðinu í heild og þær vita það sjálfar. Ekki heldur góður dagur hjá Hlíf Hauks sem fór meidd af velli á 20. mínútu eftir að hafa meiðst á hné. Forsætisráðherrann Katrín Jakobsdóttir átti heldur ekki góðan dag þar sem hún mætti á völlinn en gleymdi grímunni.
Dómarinn - 7
Ágætur. Engin stór atvik en hefði kannski stundum mátt spjalda.


