Fotbolti.net
Sverrir Örn Einarsson
Lengjudeild karla
Grindavíkurvöllur
Grindavík
Grindavík
2 - 1
Þróttur R.
Þróttur R.
0 - 125' Róbert HaukssonSigurður Bjartur Hallsson 58'1 - 1Sigurður Bjartur Hallsson 62'2 - 1Jósef Kristinn Jósefsson 63'
Dómari: Guðgeir Einarsson

SKÝRSLAN: Tveggja mánaða bið Grindavíkur á enda

Hvað réði úrslitum?

Markanef Sigurðar Bjarts Hallsonar sem skoraði tvö mörk gegn lánlausu liði Þróttar sem átti þó alls ekki slæman dag. Það vill því miður fylgja liðum í vanda að ekkert fellur með þeim og sú var raunin í kvöld.

Bestu leikmenn

1. Sigurður Bjartur Hallsson

Skorar og skorar fyrir þetta Grindavíkurlið og maður spyr sig í hvaða stöðu liðið væri ef ekki væri fyrir mörkin hans. Verður erfitt fyrir Grindvíkinga að halda honum eftir tímabilið.

2. Stuðningsmenn Þróttar

Mér finnst aðdáunarvert að sjá og heyra í stuðningsmönnum Þróttar sem mæta á völlinn og styðja sitt lið þótt mótbyrinn sé mikill. Hjarta félagsins er stórt og það er engin efi hjá mér að þó þeirra örlög kunni að vera fall verður upprisan hröð enda baklandið greinilega gott.

Atvikið

Rauða spjald Jósefs setti leikinn upp í loft enda Grindavík nýbúið að komast 2-1 yfir í leiknum. Héldu margir að martröð þeirra héldi áfram en sem betur fer fyrir þá gulu héldu þeir út. Sumir vilja þó meina að Jósef hafi ekki átt að vera inn á vellinum á þessum tíma til að byrja með en meira um það síðar.

Hvað þýða úrslitin?

Grindavík siglir lygnan sjó og keppir um fátt annað en stolt í 7.sæti deildarinnar. Þróttur er á sama tíma í skítamálum í 11.sætinu 5 stigum frá öruggu sæti.

Vondur dagur

Jósef Kristinn Jósefsson slapp með skrekkinn eftir 10 mínútur eftir ljóta tæklingu. Fékk gult spjald að launum en hefði lítið getað kvartað yfir rauðu. Má mögulega segja að réttlætinu hafi verið fullnægt um klukkustund síðar þegar hann fékk að líta sitt annað gula spjald fyrir litlar sem engar sakir og var þar með sendur í bað og er örugglega hundfúll með það.

Dómarinn

Sleppur hjá Guðgeiri frá mínum bæjardyrum séð en ekki mikið meira en það. Spurning hvort Jósef átti að fá rautt í fyrri en það er víst að hann átti seinna gula spjaldið líklega aldrei skilið. Önnur smáatvik safnast saman og skila þessari einkunn.

Uppfært. Urðu á ákveðin mistök og fókusaði um of á ákveðin atriði sem mér fannst röng. Guðgeir átti heilt yfir ekki slæman dag en stór atriði sem ég er ósáttur við sem drógu hann niður. Er blessunarlega ekki dómari sjálfur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.