Fotbolti.net
Arnar Laufdal Arnarsson
Arnar Laufdal Arnarsson
Pepsi Max-deild karla
Würth völlurinn
Fylkir
Fylkir
0 - 7
Breiðablik
Breiðablik
0 - 110' Kristinn Steindórsson0 - 221' Höskuldur Gunnlaugsson0 - 336' Viktor Karl Einarsson0 - 441' Ólafur Kristófer Helgason (sjm)0 - 571' Höskuldur Gunnlaugsson0 - 675' Davíð Örn Atlason0 - 785' Árni Vilhjálmsson
Dómari: Erlendur Eiríksson

SKÝRSLAN: Breiðablik í sjöunda himni

Hvað réði úrslitum?

Blikar bara völtuðu yfir Fylkismenn og voru yfir á öllum sviðum vallarins og Blikarnir voru bara að leika sér að Fylkismönnum oft á tíðum. Úrslitin tala sínu máli

Bestu leikmenn

1. Höskuldur Gunnlaugsson

Ofboðslega erfitt að taka einhverja tvo sérstaka í þessum flokki en Höskuldur var frábær í kvöld, skorar tvö mjög góð mörk

2. Viktor Karl

Skorar eitt og leggur upp eitt og kemur með sendinguna í sjálfsmarki Ólafs þannig Viktor kemur að þremur mörkum í kvöld, virkilega flott frammistaða hjá Viktori Karli sem og öllum 11 leikmönnum Blika.

Atvikið

Elska góðar klisjur en það er oft talað um að það er þetta fræga þriðja mark sem breytir leikjum en eftir þriðja mark Blika var þetta bara game over

Hvað þýða úrslitin?

Blikar eru komnir aftur á toppinn eftir að hafa verið í öðru sæti í einhverja 2 klukkutíma en þeir eru komnir á toppinn Fylkismenn eru komnir í fallsæti eftir að HK unnu Keflavík í kvöld.

Vondur dagur

Ólafur Kristófer markmaður Fylkismanna átti rosalega dapran leik og sérstaklega í fyrri hálfleik þar sem hann gefur tvö mörk og átti að verja hin tvö, lítið sem hann gat gert í hinur þremur en bara virkilega döpur frammistaða því miður hjá þessum 19 ára markmanni

Dómarinn - 7

Erlendur og hans teymi bara nokkuð solid, ekkert rosalega stór atvik sem þeir þurftu að glíma við, flæði leiksins var gott og bara overall solid frammistaða
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.