Fotbolti.net
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Pepsi Max-deild karla
Meistaravellir
Það er svo gott sem logn í Vesturbænum, rigning og tólf gráðu hiti.
KR
KR
2 - 1
Leiknir R.
Leiknir R.
0 - 166' Daníel Finns Matthíasson Kristinn Jónsson 71'1 - 1Kristinn Jónsson 87'2 - 1
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Myndir: Haukur Gunnarsson

SKÝRSLAN: Stórskemmtilegur leikur á góðum og rennblautum grasvelli

Hvað réði úrslitum?

Þetta var stórskemmtilegur leikur, aðstæður frábærar, góður grasvöllur og rennandi blautt. Nóg af færum og góðum töktum. KR-ingar sóttu meira og það var meira undir fyrir þá sem ég tel hafa ráðið úrslitum. KR-ingar lögðu eins mikið í sóknarleikinn og þeir gátu og náðu að skora tvö.

Bestu leikmenn

1. Kristinn Jónsson

Skoraði tvö sem varamaður og þau bæði með hægri fæti! Frábær innkoma þó að hann hafi átt einhverja sök á marki Leiknis.

2. Beitir Ólafsson

Vá, Beitir. Sorry að þú sért ekki í boxinu fyrir ofan. Frábær í dag og bjargaði sínu liði oft á tíðum.

Atvikið

Skot Birkis sem fór svo gott sem í samskeytin á þriðju mínútu uppbótartíma. Sá það skot inni.

Hvað þýða úrslitin?

KR á ennþá möguleika á að ná í Evrópusæti. Leiknir siglir áfram lygnan sjó um miðja deild, þarf mögulega ein úrslit í viðbót til að gulltryggja sætið.

Vondur dagur

Enginn sem átti vondan dag, stórskemmtilegur leikur og enginn eitthvað langt undir pari.

Dómarinn - 9

Mér fannst Helgi Mikael dæma leikinn mjög vel. Það var smá kafli sem mér fannst leikurinn ekki fá að fljóta í byrjun seinni en það er það eina.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.