Fotbolti.net
Jón Ólafur Eiríksson
Mjólkurbikar karla
Olísvöllurinn
Gola og hiti 10°
Vestri
Vestri
2 - 1
Valur
Valur
0 - 134' Tryggvi Hrafn HaraldssonJesus Maria Meneses Sabater 45'1 - 1Martin Montipo 62'2 - 190' Patrick Pedersen
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson

SKÝRSLAN: Íslandsmeistararnir úr leik

Hvað réði úrslitum?

Vestri þorði að spila sinn leik. Miðjumenn voru yfirvegaðir á boltann og þeir sóttu á mörgum mönnum. Ferðalagið vestur náði ekki að hrista Valsarana í gang sem voru frekar andlausir.

Bestu leikmenn

1. Pétur Bjarnason

Sennilega hægt að velja ellefu menn úr heimaliðinu, allir áttu toppdag. Set þetta á Pétur, hélt bolta afar vel á mikilvægum augnablikum, hljóp mikið og var mættur á báða enda vallarins til að hjálpa liðinu. Frábær snerting til að búa til sigurmarkið.

2. Chechu Meneses

Þeir félagar Elmar og Chechu voru með Patrick Pedersen algerlega í vasanum í dag. Hann stóð vaktina vel og auðvitað var mark hans úr aukaspyrnu ákaflega gott og mikilvægt.

Atvikið

Jöfnunarmark Vestra. Eftir að Valur komst yfir virtist þetta ætla að sigla þægilega í höfn fyrir gestina. Aukaspyrna Chechu kom rétt fyrir hlé og gaf heimamönnum trú fyrir seinni hálfleikinn.

Hvað þýða úrslitin?

Vestri eru komnir í fjögurra liða úrslit Mjólkurbikarsins! Evrópudraumar á koddanum í nótt hjá Samma. Valur er úr leik í bikarnum og von þeirra um Evrópukeppni er orðin ákaflega veik.

Vondur dagur

Patrick Pedersen var heillum horfinn í dag. Ógnaði sárasjaldan og kórónaði leik sinn með því að næla sér í rautt spjald undir lokin.

Dómarinn - 9

Rauða spjaldið var réttur dómur og komst vel frá öðrum minni atvikum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.