Fotbolti.net
Þorgeir Leó Gunnarsson
Þorgeir Leó Gunnarsson
Lengjudeild karla
Vivaldivöllurinn
Grótta
Grótta
8 - 0
Afturelding
Afturelding
Pétur Theódór Árnason 6'1 - 0Kristófer Melsted 21'2 - 0Pétur Theódór Árnason 29'3 - 0Kjartan Kári Halldórsson 41'4 - 0Pétur Theódór Árnason 44'5 - 0Pétur Theódór Árnason 45'6 - 0Gabríel Hrannar Eyjólfsson 52'7 - 0Kjartan Kári Halldórsson 80'8 - 0
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Myndir: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

SKÝRSLAN: Grótta á eldi!

Hvað réði úrslitum?

Grótta var einfaldlega miklu betri á öllum sviðum í kvöld! Gestirnir byrjuðu leikinn ágætlega en eftir það var enginn vilji til að gera leik úr þessu. Stórt hrós á sóknarleik Gróttu, voru klókir og fljótir að refsa Aftureldingu trekk í trekk.

Bestu leikmenn

1. Pétur Theódór

Fjögur mörk og hefði vel geta skorað fleiri! Gjörsamlega frábær frammistaða og það verður gaman að sjá hann með Breiðablik á næsta ári.

2. Gabríel Hrannar

Mark og stoðsendingar. Flottur leikur og var virkilega skapandi í allt kvöld.

Atvikið

Mörk breyta leikjum. Arnór Gauti var skónúmeri frá því að skora snemma í leiknum í stöðunni 0-0. Ef og hefði.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin breyta litlu varðandi stöðuna í deildinni. Bæði lið ekki að keppa upp á neitt. Úrslitin þýða samt að Afturelding skuldar betri frammistöðu í síðustu umferð deildarinnar gegn Fram.

Vondur dagur

Afturelding.

Dómarinn - 6

Gunnar Freyr var ágætur en hann sleppti augljósu víti sem gestirnir áttu að fá. Línan í brotum var oft líka frekar óskýr.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.