SKÝRSLAN: Zidane og félagar í undanúrslit
Hvað réði úrslitum?
ÍA var betra liðið stærstan hluta leiksins og úrslitin sýna það. Ég held að 1-3 sé sanngjörn niðurstaða líka því ÍA fékk þrjú virkilega góð færi áður en þriðja markið kom og svo markið sem Ísak Snær skoraði en dómaratríóið sá ekki að sá bolti fór yfir línuna.
Bestu leikmenn
1. Þórður Þorsteinn Þórðarson
Geðveikt mark og flott stoðsending frá ÞÞÞ í dag.
2. Gísli Laxdal
Gísli var ógnandi eiginlega allan leikinn og skoraði annað mark ÍA
Atvikið
Zidane snúningur Þórðar sem endaði á góðu skoti í fjærhornið.
Hvað þýða úrslitin?
ÍA er komið í undanúrslitin og ÍR er úr leik.
Vondur dagur
Ekkert sem öskrar eitthvað sérstkalega á mig.
Dómarinn - 5,5
Ágætlega dæmdur leikur en Ísak Snær skoraði auðvitað mark sem átti að standa.



