Fotbolti.net
Sverrir Örn Einarsson
Mjólkurbikar karla
Kórinn
Logn eins og vant er innandyra
HK
HK
3 - 5
Keflavík
Keflavík
0 - 113' Josep Arthur Gibbs0 - 217' Josep Arthur GibbsBirnir Snær Ingason (víti) 19'1 - 21 - 333' Ásgeir Börkur Ásgeirsson (sjm)Stefan Alexander Ljubicic 37'2 - 32 - 460' Ástbjörn ÞórðarsonStefan Alexander Ljubicic 85'3 - 43 - 598' Ari Steinn Guðmundsson
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson

SKÝRSLAN: Markaveisla í Kórnum

Hvað réði úrslitum?

Keflavík kláraði einfaldlega færin sem HK bauð þeim uppá betur. Leikurinn hefði vel getað fari 7-7 miðað við færin sem liðin brenndu af. En þessi skortur á varnarleik er ákveðin hausverkur fyrir þjálfara beggja liða.

Bestu leikmenn

1. Joey Gibbs

Sóknarmenn lifa á því að skora mörk og vera á réttum stað á réttum tíma. Joey gerði það og refsaði heimamönnum grimmilega þó þrennan sem ég gaf honum í leiknum hafi ekki staðist sjónvarpsmyndir.

2. Dagur Ingi Valsson

Stoðsendingar og vinnsla hjá Austfirðingnum í kvöld. Strákur sem á helling inni og átti skínandi leik í kvöld,

Atvikið

Annað mark Keflavíkur setti tóninn. Glórulaus sending úr varnarlínu HK beint fyrir fætur Gibbs sem leit upp, sá að Arnar var langt út úr markinu og lyfti boltanum snyrtilega í netið.

Hvað þýða úrslitin?

Keflavík er í undanúrslitum en HK ekki svo einfalt er það.

Vondur dagur

Varnarmenn beggja liða hafa átt betri leiki en HK vörnin þarf að skoða sín mál fyrir næstu deildarleiki og rífa sig upp úr vonbrigðum kvöldsins og stoppa í götin

Dómarinn - 7

Egill var fínn í kvöld. Tempó leiksins hátt og smá hiti í mönnum en hann gerði sitt vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.