Leik lokið!
ÍA er komið í undanúrslit!
94. mín
Skottilraun framhjá frá ÍR.
94. mín
Elias fer niður inn á teig ÍR, ekkert dæmt.
92. mín
ÍA er á leið í undanúrslit!
MAAAARK!
Guðmundur Tyrfingsson
Halldór með afleita sendingu til baka og Guðmundur kemst inn í boltann og fer framhjá Aroni Óskari. Guðmundur rennir boltanum í markið.ÍA er á leið í undanúrslit!
91. mín
ÍA á innkast á eigin vallarhelmingi. ÍR-ingar reyna að hápressa.
90. mín
Aron Kristófer dæmdur brotlegur.
90. mín
Óttar Bjarni með þetta allt á hreinu og engin hætta í þessari sóknartilraun hjá ÍR.
90. mín
ÍA á hornspyrnu.
ÍR-ingar vinna boltann og keyra upp!
ÍR-ingar vinna boltann og keyra upp!
88. mín
ÍA á horn en ÍR-ingar hreinsa.
87. mín
InnÓliver Elís Hlynsson
ÚtAxel Kári Vignisson
87. mín
InnHörður Máni Ásmundsson
ÚtJorgen Pettersen
87. mín
InnArian Ari Morina
ÚtÁgúst Unnar Kristinsson
87. mín
Alex Davey liggur eftir, þarf aðeins að teygja.
86. mín
Reynir með fyrirgjöfina af vinstri kantinum en boltinn fer beint afturfyrir. Reynir er svekktur með sjálfan sig.
85. mín
Gult spjald
Aron Kristófer Lárusson
Gult fyrir tuð.85. mín
Gult spjald
Steinar Þorsteinsson
Gult fyrir leiktöf.85. mín
ÍA á hornspyrnu.
Brynjar með fyrirgjöfina og Alex Davey kemst í boltann en boltinn af honum og til hliðar og hættan rennur út í sandinn.
Brynjar með fyrirgjöfina og Alex Davey kemst í boltann en boltinn af honum og til hliðar og hættan rennur út í sandinn.
84. mín
Ágúst Unnar með fyrirgjöf sem fer yfir Bergvin á fjærstönginni. ÍA á markspyrnu.
82. mín
InnElias Alexander Tamburini
ÚtGísli Laxdal Unnarsson
Aron Kristófer fer á kantinn og Elias í bakvörðinn.
82. mín
Þórður með sendingu inn á teiginn, finnur Viktor en Viktor er dæmdur rangstæður.
80. mín
Greenwood með aukaspyrnu, sendir til hliðar á Axel Kára sem lætur vaða af löngu færi. Skotið er ekki galið en þó aldrei hættulegt.
79. mín
InnRóbert Andri Ómarsson
ÚtHilmir Vilberg Arnarsson
78. mín
Flott sending innfyrir á Steinar Þorsteins frá ÞÞÞ. Steinar gerir vel, skallar boltann áfram en hittir boltann mjög illa í skotinu og boltinn langt framhjá.
76. mín
Gult spjald
Brynjar Snær Pálsson
Braut á Greenwood, það er bannað.75. mín
Brynjar með fyrirgjöfina og Hlynur Sævar skallar framhjá.
74. mín
ÍA á hornspyrnu.
73. mín
Gult spjald
Guðmundur Tyrfingsson
Sparkaði boltanum í burtu í pirringi þegar hann var dæmdur brotlegur.73. mín
InnBragi Karl Bjarkason
ÚtPétur Hrafn Friðriksson
71. mín
Gult spjald
Pétur Hrafn Friðriksson
71. mín
Óttar Bjarni mjög reiður eftir að Pétur braut á honum.
Óttar fór svo að pirrast á einhverjum öðrum í kjölfarið.
Óttar fór svo að pirrast á einhverjum öðrum í kjölfarið.
70. mín
Skagamenn hreinsa hornspyrnuna í burtu.
69. mín
InnHlynur Sævar Jónsson
ÚtÓlafur Valur Valdimarsson
69. mín
InnSteinar Þorsteinsson
ÚtÍsak Snær Þorvaldsson
69. mín
InnViktor Jónsson
ÚtEyþór Aron Wöhler
69. mín
Og aftur fær ÍR horn!
68. mín
Skagamenn skalla boltann frá Greenwood afturfyrir. Önnur hornspyrna.
Núna koma Skagamenn boltanum í burtu.
Núna koma Skagamenn boltanum í burtu.
67. mín
ÍR-ingar mjög öflugir síðustu mínútu. Fá enn eina hornspyrnuna núna.
66. mín
Petttersen með seinni hornspyrnuna og Pétur Hrafn kemst í boltann en skallar yfir mark ÍA.
65. mín
Fastur bolti fyrir sem fer af Skagamanni og í horn hinu megin.
65. mín
Greenwood finnur Reyni í framhjáhlaupinu og Reynir á þrumuskot sem Árni ver í horn.
62. mín
ÍR á hornspyrnu, Greenwood tekur og mér sýnist það vera Bergvin sem á skallan á fjærstönginni. Skallinn er laus og Árni Marinó með þetta allt á hreinu.
61. mín
InnGuðmundur Tyrfingsson
ÚtHákon Ingi Jónsson
Guðmundur fer á hægri kantinn og Eyþór Aron fer upp á topp.
60. mín
Ísak Snær kemur sér í mjög gott færi en rennir boltanum með vinstir framhjá marki ÍR!
57. mín
Ísak Snær!
Ísak með skalla í slána eftir hornspyrnu frá Brynjari Snæ og boltinn fer yfir línuna!
Ágúst Unnar liggur eftir hjá ÍR og brot er dæmt á Eyþór Aron.
ÍR-ingar að mínu mati stálheppnir þarna!
Ísak með skalla í slána eftir hornspyrnu frá Brynjari Snæ og boltinn fer yfir línuna!
Ágúst Unnar liggur eftir hjá ÍR og brot er dæmt á Eyþór Aron.
ÍR-ingar að mínu mati stálheppnir þarna!
55. mín
Gísli Laxdal fær boltann á vinstri kantinum við vítateig ÍR. Gísli sótti í átt að hliðarlínunni hinu megin og skaut þegar hann var fyrir framan miðjan vítateignn.
Skotið var fast og gott í vinstra markhornið.
MAAAARK!
Gísli Laxdal Unnarsson (stoðsending: Þórður Þorsteinn Þórðarson )
ÞÞÞ með flotta skiptingu yfir á vinstri kantinn úr hægri bakverðinum.Gísli Laxdal fær boltann á vinstri kantinum við vítateig ÍR. Gísli sótti í átt að hliðarlínunni hinu megin og skaut þegar hann var fyrir framan miðjan vítateignn.
Skotið var fast og gott í vinstra markhornið.
52. mín
Greenwood með tilraun en svo sem ekki mikil hætta í þessu.
49. mín
Aukaspyrna hjá ÍA af hægri kantinum. Boltinn fer á fjærstöngina, þar er Alex Davey og hann skallar framhjá.
47. mín
ÍR fær fyrstu hornspyrnu seinni hálfleiks.
Hákon Ingi skallar í burtu og boltinn endar svo hjá Árna í marki ÍA.
Hákon Ingi skallar í burtu og boltinn endar svo hjá Árna í marki ÍA.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
45. mín
Hálfleikur
Jafnt í hálfleik! Flautað til hálfleiks skömmu eftir markið.
45. mín
Hægri bakvörðurinn jafnar metin, markið lá í loftinu. Átti fyrirgjöf sem skölluð er í burtu og svo er boltanum hreinsað og Þórður kemst í þann bolta.
Svo koma gjörsamlega frábær tilþrif hjá Þórði, Zidane-snúningur og svo skot í fjærhornið. Það var virkilega laglegt!
MAAAARK!
Þórður Þorsteinn Þórðarson
45+1Hægri bakvörðurinn jafnar metin, markið lá í loftinu. Átti fyrirgjöf sem skölluð er í burtu og svo er boltanum hreinsað og Þórður kemst í þann bolta.
Svo koma gjörsamlega frábær tilþrif hjá Þórði, Zidane-snúningur og svo skot í fjærhornið. Það var virkilega laglegt!
44. mín
Gísli Laxdal með skot sem Aron Óskar fær beint á sig.
ÍA hefur tekið öll völd og sótt eiginlega allt síðasta korterið.
ÍA hefur tekið öll völd og sótt eiginlega allt síðasta korterið.
43. mín
Ísak Snær með þrumuskot sem fer í Halldór sem liggur eftir inn á teignum. Þetta hefur verið vont.
40. mín
Eyþór Aron með skot fyrir utan teig sem fer beint á Aron Óskar.
39. mín
Gísli með skot sem fer´í varnarmann, boltinn berst út til hægri inn á teignum og þar er Þórður sem á þrumuskot en það er aldrei á leiðinni á markið.
36. mín
Pétur Hrafn heppinn að fá ekki spjald fyrir þetta brot.
Brynjar Snær tekur aukaspyrnu örlítið hægra megin á vallarhelmingi ÍR og boltinn hittir engann inn á teignum og fer afturfyrir.
Brynjar Snær tekur aukaspyrnu örlítið hægra megin á vallarhelmingi ÍR og boltinn hittir engann inn á teignum og fer afturfyrir.
34. mín
Ísak Snær með þrumuskot en það bæði langt yfir og framhjá.
32. mín
Gult spjald
Þórður Þorsteinn Þórðarson
ÞÞÞ fyrstur í bókina í dag.32. mín
Gísli Laxdal gerir sig líklegan en flottur varnarleikur hjá ÍR inn á eigin vítateig.
30. mín
Þórður með fyrirgjöf sem Aron Óskar grípur.
29. mín
Gísli Laxdal með fyrirgjöf úr aukaspyrnu en boltinn er aðeins of hár fyrir Eyþór Aron og boltinn fer afturfyrir. ÍR á markspyrnu.
27. mín
Gísli Laxdal rangstæður í flottu upphlaupi hjá gestunum.
24. mín
Gísli Laxdal kemur boltanum í netið en boltinn hafði farið út fyrir völlinn áður en Eyþór kom boltanum á Gísla.
23. mín
Gísli með flottan sprett og finnur Hákon Inga inn á teignum. Hákon á laust skot sem Aron er í smá vandræðum með í markinu en þetta bjargast allt og Aron handsamar boltann á endanum.
22. mín
Hákon Ingi fellur við alveg við vítateig ÍR en ekkert er dæmt. Skömmu síðar brýtur Ísak Snær af sér og ÍR á aukaspyrnu á eigin vallarhelmingi.
19. mín
Pétur með skemmtilega takta og lætur vaða með vinstri úr teignum. Skotið fer yfir mark Skagamanna.
17. mín
Mjög flott mark - Frábær fyrirgjöf inn á teiginn, aðeins á fjær og þar er Pétur sem stangar boltann í netið. ÍR leiðir!
Sýndist það vera Reynir sem kom með fyrirgjöfina.
MAAAARK!
Pétur Hrafn Friðriksson (stoðsending: Reynir Haraldsson)
Fyrsta markið!Mjög flott mark - Frábær fyrirgjöf inn á teiginn, aðeins á fjær og þar er Pétur sem stangar boltann í netið. ÍR leiðir!
Sýndist það vera Reynir sem kom með fyrirgjöfina.
14. mín
Þórður með fyrirgjöf inn á teig ÍR en Halldór skallar í burtu.
12. mín
Reynir vill fá aukaspyrnu eftir návígi gegn Eyþóri en það var lítið í þessu. Ekkert í þessu.
9. mín
Reynir kemur með fyrirgjöf en Skagamenn koma boltanum í burtu.
8. mín
Lið ÍR:
Aron
Ágúst - Halldór - Alex - Reynir
Axel - Hilmir - Pettersen
Bergvin - Pétur - Greenwood
Aron
Ágúst - Halldór - Alex - Reynir
Axel - Hilmir - Pettersen
Bergvin - Pétur - Greenwood
5. mín
Ísak Snær vinnur aukaspyrnu fyrir ÍA á hægri kantinum. Spyrnan beint í eina manninn í veggnum.
4. mín
Rees Geenwood með flottan bolta inn á teiginn en Pettersen nær ekki til boltans inn á markteig.
2. mín
Lið ÍA:
Árni
Þórður - Óttar - Alex - Aron
Ólafur
Ísak - Brynjar
Eyþór - Hákon - Gísli
Árni
Þórður - Óttar - Alex - Aron
Ólafur
Ísak - Brynjar
Eyþór - Hákon - Gísli
2. mín
Halldór Arnarsson á skalla eftir hornspyrnuna en skallar yfir!
1. mín
Bergvin Fannar fær boltann inn á teig ÍA, á skot en skotið fer í varnarmann. ÍR fær fyrsta horn leiksins!
1. mín
Leikur hafinn
Fulla ferð! ÍR byrjar með boltann.
Fyrir leik
Liðin eru komin inn á völlinn og allt klárt!
Það er sturlað veður og allt í toppmálum!. Smá gola og glampandi sól.
Það er sturlað veður og allt í toppmálum!. Smá gola og glampandi sól.
Fyrir leik
Viðtal við Reyni Haraldsson (13. ágúst):
Gaman að vera í fyrsta skipti í 8-liða úrslitum
Hvernig líst þér á að fá ÍA, á heimavelli, í næstu umferð?
,,Mér líst mjög vel á ÍA, fáir bæir alið af sér fleiri toppmenn en Akranes. Einn af mínum allra bestu Viktor Jónsson hringdi í mig í hádeginu og sagði hvað það yrði nú gaman að spila loksins móti hvorum öðrum, en hvað liðið varðar þá eru nokkrir mjög góðir leikmenn eins og Viktor Jóns, Hallur Flosa og Sindri Snær sem við þurfum að passa okkur á en ég sé ekki mikinn mun á ÍBV hópnum og Skagaliðinu," segir Reynir.
,,Þannig fyrir mér eru allir vegir færir. Annars er öll pressan á þeim, við munum bara hafa gaman af því að vera í fyrsta skipti í 8-liða úrslitum og að taka á móti þeim heima."
Fannst orð Jóa Kalla bara fyndin
Jói Kalli, þjálfari ÍA, óskaði eftir því að fá ÍR á heimavelli í þessari umferð. Munu þau orð hjálpa ÍR-ingum?
,,Nei, þau voru bara fyndin. Ég á auðvitað ekki að vera með internet tengingu þannig ég setti á twitter hvað það er fyndið að hafa ekki meiri trú á liðinu sínu en það að vilja mæta okkur á heimavelli, en það er bara í 100% gríni gert, og ég vil bara biðja Bjarka Viðarsson afsökunar á þessum ummælum. En ef ég ætti að vitna í Arnar Halls þá ætlum við að keppa til fulls sama hvort liðið heitir KV eða ÍA."
Mun sjá sóma sinn í að skipta yfir
ÍR-ingurinn Sindri Snær mætir í Breiðholtið, fær hann öðruvísi móttökur en aðrir Skagamenn?
,,Sindri Snær sagðist sjálfur ekki hafa spilað mótsleik í 10 ár á ÍR vellinum og löngu kominn tími til. Ég mun persónulega bjóða honum í heita pottinn í klefa 1 og þá mun hann fatta í miðjum þrumum og meldingum hvað það er ógeðslega gaman í ÍR og loksins sjá sóma sinn í að skipta yfir."
Góð ár framundan í Breiðholtinu
Hvað þurfið þið að gera til að nýta þennan bikar meðbyr í deildinni?
,,Við erum þetta árið að hefja nýja uppbyggingu með alvöru skipulagningu og þjálfara sem bakkar hana upp og partur af því er að búa til hefðir. Við þurfum að halda áfram að mynda þessar hefðir í öllum okkar æfingum og leikjum sem framundan eru þótt úrslitin í deildinni hafa ekki verið þau sem við vildum."
,,Þetta tekur sinn tíma en það eru góð ár framundan í Breiðholtinu. Persónulega ætla ég að bæta við þau 7 mörk sem ég er kominn með á tímabilinu og þetta gefur mér líka mikið boost fyrir næstu deildarleiki," sagði Reynir.

Getur ekki mætt sínu gamla liði
Sindri Snær hefur sennilega meiðst í leiknum gegn Leikni. Hann er uppalinn hjá ÍR og eflaust svekkjandi fyrir hann að missa af leiknum.

Sindri Snær hefur sennilega meiðst í leiknum gegn Leikni. Hann er uppalinn hjá ÍR og eflaust svekkjandi fyrir hann að missa af leiknum.

Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár!
Arnar Hallsson, þjálfari ÍR, gerir þrjár breytingar frá síðasta deildarleik (2-1 tap gegn KF). Reynir, Alex Bergmann og Halldór koma inn í liðið fyrir þá Arian Ara Morina, Patrik Hermannson og Hörð Mána Ásmundsson.
Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, gerir fimm breytingar frá síðasta deildarleik (3-1 sigur gegn Leikni). Þórður Þorsteinn, Ólafur Valur, Hákon Ingi, Eyþór Aron og Alex Davey koma inn fyrir þá Wout Droste, Sindra Snæ Magnússon, Guðmund Tyrfingsson og Viktor Jónsson. Sindri Snær er sá eini af þeim sem tekur sér ekki sæti á bekknum en hann er í liðsstjórn í dag.

Gunni giskar á útisigur:
Gunnar Birgisson, íþróttalýsandi RÚV og meðlimur Innkastsins, spáir í leikina í bikarnum. Hann spáir 2-4 útisigri.
Ef að Gústi félagi minn er í hóp þá gæti ég mögulega þurft að breyta þessari spá. Hann er ótrúlegur leikmaður og hefur gefið efasemdarmönnum langt nef alla leiktíðina. Arnar Halls drillar sína menn í 2-0 forystu en Skaginn hrekkur í gang í seinni. Ísak Snær með 2, eitt af 30 metrunum í vinkilinn.

Beinar textalýsingar í dag:
16:30 Vestri - Valur
16:30 ÍR - ÍA
19:15 HK - Keflavík
19:15 Fylkir - Víkingur
16:30 Vestri - Valur
16:30 ÍR - ÍA
19:15 HK - Keflavík
19:15 Fylkir - Víkingur
Fyrir leik
ÍR er í 9. sæti 2. deildar en ÍA er í botnsæti Pepsi Max-deildarinnar.
ÍR vann gegn Elliða í fyrstu umferð, Álftanesi í 2. umferð, ÍBV í 32-liða úrslitum og svo Fjölni í 16-liða úrslitunum.
ÍA vann gegn Fram í 32-liða úrslitum og gegn FH í 16-liða úrslitum.
ÍR vann gegn Elliða í fyrstu umferð, Álftanesi í 2. umferð, ÍBV í 32-liða úrslitum og svo Fjölni í 16-liða úrslitunum.
ÍA vann gegn Fram í 32-liða úrslitum og gegn FH í 16-liða úrslitum.
Fyrir leik
Góðan daginn lesendur góðir og veriði velkomnir í beina textalýsingu frá Hertz vellinum þar sem fram fer leikur ÍR og ÍA í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars karla.
Leikurinn hefst klukkan 16:30.
Leikurinn hefst klukkan 16:30.