Fotbolti.net
Besta deildin
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Besta-deild karla
HS Orku völlurinn
Hægur norðanvindur, skýjað og hitinn um 8 gráður. Völlurinn eins góður og von er á 24.apríl
Keflavík
Keflavík
0 - 1
Valur
Valur
0 - 140' Birkir Már Sævarsson
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Betra en ekki nóg hjá Keflavík

Hvað réði úrslitum?

Valsmenn nýttu eitt færi en Keflavík ekki neitt. Það er það einfalt að öðru leiti var leikurinn jafn og baráttan í fyrirrúmi. Keflvíkingar geta þó tekið jákvæða frammistöðu út úr leiknum þótt stigin fari öll að Hlíðarenda.

Bestu leikmenn

1. Sebastian Hedlund

Það sem Keflavík bauð upp á fram á við stoppaði mjög oft hjá svíanum. Solid frammistaða.

2. Rúnar Þór Sigurgeirsson

Gaman að sjá Rúnar Þór aftur á vellinum og hann sýndi það í dag að hann er einn allra skemmtilegasti vinstri bakvörður landsins. Verður Keflavík gríðarlega mikilvægur þegar hann verður 100% á ný eftir aðgerð.

Atvikið

57. mín á klukkunni og Guy Smit breyttist í miðjumann, rak boltann frá eigin teig undir pressu nánast upp að miðjuboga þar sem hann tapaði boltanum til Frans Elvarssonar sem náði ekki að gera sér mat úr þessari gloríu Guy en máttlítið skot hans endaði hjá Hedlund.

Hvað þýða úrslitin?

Valur með 6 stig á toppi deildarinnar en Keflavík enn stigalaust við botninn.

Vondur dagur

Það er erfitt að tala um að einhver hafi átt vondan dag á vellinum eftir svona leik. En ef maður ætti að velja setur maður það á framherja liðanna sem hefðu vel þegið fleiri færi og stærri svæði að sækja í. En liðin voru bæði þétt og gáfu fá færi á sér.

Dómarinn - 6,75

Sigurður átti bara ágætis dag. Eitt og eitt smáatvik sem menn geta deilt um en stóru atriðin rétt og það skiptir mestu máli.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.