SKÝRSLAN: Skagamenn sannfærandi gegn Íslandsmeisturunum
Hvað réði úrslitum?
Skagamenn skoruðu þrjú góð mörk úr föstum leikatriðum og hefðu getað skorað fleiri í leiknum, voru heilt yfir sterkari og gáfu fá færi á sér. Massíf frammistaða heimamanna í dag.
Bestu leikmenn
1. Oliver Stefánsson (ÍA)
Oliver var stórkostlegur á miðjunni í dag, lokandi öllum svæðum fyrir framan vörn Skagamanna og tæklandi allt sem þurfti að tækla, auk þess að stýra samherjum sínum gríðarlega vel og sýnandi frábæran karakter.
2. Aron Bjarki Jósepsson (ÍA)
Gríðarlega öflugur í vörn heimamanna, skallandi hvern boltann á fætur öðrum frá auk þess að skalla einn í mark gestanna og tryggja þar með 3-0 sigur.
Atvikið
Dauðafærið hjá Birni fyrir opnu marki þegar hann setur boltann framhjá, það hefði verið líflína fyrir Víkinga að minnka muninn nógu snemma til þess að reyna að fá eitthvað útúr þessum leik, en inn vildi boltinn ekki.
Hvað þýða úrslitin?
Skagamennn sitja þægilegir í þriðja sæti deildarinnar með fjögur stig eftir tvo leiki. Víkingar eru í sjöunda sæti með þrjú stig eftir tvo leiki.
Vondur dagur
Kyle McLagan, fékk byrjunarliðssæti í dag og nýtti það alls ekki, tekinn útaf í hálfleik.
Dómarinn - 7
Dómarinn með ágætis tök á leiknum, ekkert stórt sem hægt er að setja út á bara ein aukaspyrna hér og þar sem mætti setja spurningamerki við en engin úrslitaáhrif á þennann leik.




