Fotbolti.net
@karisnorraKári Snorrason
Kári Snorrason
Lengjudeild karla
Vivaldivöllurinn
8 gráður og skýjað
Grótta
Grótta
5 - 0
Vestri
Vestri
Luke Morgan Conrad Rae 5'1 - 0Kristófer Orri Pétursson 6'2 - 0Kjartan Kári Halldórsson 22'3 - 049' Jesus Maria Meneses SabaterLuke Morgan Conrad Rae 82'4 - 0Sigurður Hrannar Þorsteinsson 87'5 - 0
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson

SKÝRSLAN: Grótta valtaði yfir Vestra

Hvað réði úrslitum?

Grótta skoraði 2 mörk á upphafsmínútum leiksins og Grótta gáfu aldrei eftir. Vestri átti mjög erfitt með að verjast skyndisóknum Gróttu en þeir nýttu sér hraðann vel og skilaði það mörkum.

Bestu leikmenn

1. Luke Rae

Stórkostlegur í leiknum 2 mörk gegn sínum gömlu liðsfélögum.

2. Kjartan Kári Halldórsson

Frábær í leiknum. Skoraði mark og átti skot í stöng beint úr aukaspyrnu.

Atvikið

Mark Luke Rae á fyrstu mínútum leiksins setti tóninn fyrir hvað myndi koma.

Hvað þýða úrslitin?

Grótta á toppi Lengjudeildarinnar, með bestu markatöluna eftir fyrstu umferð.

Vondur dagur

Vondur dagur hjá Chechu Meneses og bara nánast hjá öllu Vestra liðinu.

Dómarinn - 8

Ágætlega dæmdur leikur hjá Arnari og aðstoðarmönnum hans.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.