SKÝRSLAN: 10 Keflvíkingar björguðu stigi í uppbótartíma
Hvað réði úrslitum?
Klaufagangur beggja liða í raun. Keflvíkingar gáfu gestunum helst til auðvelda leið inn í leikinn í seinni hálfleik með klaufalegum varnarleik. Hið sama má segja um gestina sem voru gjafmildir í þeim fyrri. Vissulega er jöfnunarmark ÍBV umdeilt sem og gulu spjöldin sem Magnús fékk í liði Keflavíkur en eftir á að hyggja þegar leikurinn er skoðaður sem heild er niðurstaðan líklega sanngjörn.
Bestu leikmenn
1. Nacho Heras
.Tvær stoðsendingar þar af önnur á mjög mikilvægum tíma og heilt yfir fínn leikur hjá Nacho. Byrjaði leikinn í bakverði en lék síðari hálfleikinn í miðverði eftir rauða spjaldið á Magnús.
2. Andri Rúnar Bjarnason
Fær þetta fyrir að koma sínum mönnum á bragðið. Annars var leikurinn ótrúlegt en satt mjög tilþrifalítill af 3-3 leik að vera og skilur lítið eftir sig.
Atvikið
2-2 jöfnunarmark ÍBV. Af sjónvarpsmyndum að dæma hafa heimamenn ýmist til síns máls en það hefur bara ekkert að segja ef sá er völdin hefur og blæs í flautuna dæmir ekki.
Hvað þýða úrslitin?
Keflavík er áfram á botninum en nú með 1 stig í stað 0. ÍBV fer í 2 stig upp í 9 sætið.
Vondur dagur
Magnús Þór Magnússon skuldlaust og ég held að hann sé sennilega sammála mér. Við getum rökrætt um réttmæti spjaldana og leiklestur Ívars Orra en klaufalegt yfir höfuð að bjóða upp á möguleikann á seinna gula spjaldinu í baráttu við Andra Rúnar sem átti líklega aldrei möguleika á því að ná til boltans.
Dómarinn - 5
Stór atvik sem orka tvímælis við fyrstu sýn, Verra fannst mér þó að að mínu viti hélt hann ekki sömu línu í gegnum leikinn. Spjaldaði grimmt fyrir mótmæli og var ekki alveg á pari við það sem maður á að venjast frá þessum frábæra dómara. Það er þó alltaf þannig að allir upplifa leikinn á sinn hátt og það má vel vera að ég sé að tala með rassgatinu. Annað eins hefur nú gerst.



