Fotbolti.net
Besta deildin
@haraldur_ornHaraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Besta-deild karla
Meistaravellir
KR
KR
0 - 0
KA
KA
36' Oleksii Bykov48' Arnar Grétarsson
Dómari: Elías Ingi Árnason

SKÝRSLAN: Vonlausir sóknarmenn KR-inga skila bara einum punkt

Hvað réði úrslitum?

Rauða spjaldið réði því að KA sótti lítið en svo vörðust þeir rosalega vel.

Bestu leikmenn

1. Ívar Örn Árnason (KA)

Erfitt að velja einhvern einn sem mann leiksins þar sem KA varðist virkilega vel sem heild. En miðvörðurinn sem spilaði 90 mínútur fær heiðurinn. Hann var sterkur í loftinu og skilaði góðu dagsverki.

2. Steinþór Már Auðunsson (KA)

Stubbur bjargaði sínum mönnum nokkrum sinnum. Átti 2 virkilega góðar vörslur.

Atvikið

Rauða spjaldið. Bykov leggur ennið í Kjartan og er rekinn af velli fyrir vikið. Rétt ákvörðun en KA menn pirra sig kannski á því að Kjartan mjólkaði þetta töluvert.

Hvað þýða úrslitin?

KA menn eru í 2.sæti með 10 stig eftir 4 leiki 2 stigum á eftir Breiðablik sem hefur unnið alla sína. KR situr í 7.sæti með 4 stig í þéttum miðjupakka. KR-ingar eru líkast til ekki ánægðir með það.

Vondur dagur

Sóknarmenn KR. Þeir virtust ekki hafa nein svör fyrir þétta vörn KA manna og dældu bara inn fyrirgjöfum sem heppnaðist ekki oft og þegar KR-ingur náði skalla voru þeir ekki nógu góðir.

Dómarinn - 9

Virkilega erfiður leikur fyrir Elías dómara en miðað við endursýningar sem ég hef séð voru öll stóru atriðin rétt hjá honum. Eina ástæðan fyrir því aðm hann fær ekki 10 er gula spjaldið sem Elfar fær sem mér fannst ekki rétt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.