Fotbolti.net
@haraldur_ornHaraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Afturelding
Afturelding
Lengjudeild karla
Malbikstöðin að Varmá
Kalt og blautt
1 - 1
Grindavík
Grindavík
Sigurður Gísli Bond Snorrason (víti) 32'1 - 01 - 171' Aron Jóhannsson
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Leik lokið!
Daufum seinni hálfleik lokið. Jafntefli niðurstaða. Skýrsla og viðtöl koma seinna í kvöld.
94. mín
Næstum svaka dramatík hér í lokin. Siggi Bond með sendinguna fyrir sem Aron Dagur er hársbreidd frá því að slá boltann í eigið net.
92. mín
+4 min
Grindavík
90. mín
InnKenan Turudija
ÚtTómas Leó Ásgeirsson
89. mín
Þvílíkt Klúður!! Hilmar kemur með gullfallega sendingu inn fyrir vörnina á Kairo sem er í fullt af plássi en skotið hans framhjá
Grindavík
89. mín
InnHilmar Andrew McShane
ÚtThiago Dylan Ceijas
86. mín
Menn mjög ósáttir við dómarann eftir að hann stoppar sókn hjá heimamönnum þar sem að Grindvíkingur liggur eftir
Afturelding
84. mín
InnOskar Wasilewski
ÚtGunnar Bergmann Sigmarsson
Grindavík
83. mín
Gult spjald

Kairo Asa Jacob Edwards-John

Reynir sporðdrekaspyrnu úr aukaspyrnunni en fer með takkana í Bond
Afturelding
82. mín
Gult spjald

Andi Hoti

Aukaspyrna á fínum stað.
79. mín
Kairo skorar hér frábært mark eftir að plata varnarmenn Aftureldingar hér upp úr skónum en eftir mikinn fögnuð hafði dómarinn dæmt rangstöðu.
77. mín
Hörkufæri hér fyrir heimamenn eftir horn frá Sigga Bond. Skallinn er á leiðinni á markið en fer í varnarmann.
Grindavík
71. mín
MAAAARK!

Aron Jóhannsson

Frábært skot fyrir utan teig! Grindavík búnir að dáleiða hérna vörn Aftureldingar til svefns. Taka eina snögga færslu á milli sín og Aron lætur vaða í fyrsta og hann syngur í netinu. Léleg vörn hjá heimamönnum
70. mín
Grindavík aðeins að auka pressuna og auka tempóið
68. mín
Já þetta er ekki beint Víkingur -Stjarnan hérna
64. mín
Afturelding situr aðeins aftar núna en Grindavík virðast ágætlega sáttir með að spila boltanum hægt á milli sín. Lítið að gerast.
Afturelding
63. mín
InnGísli Martin Sigurðsson
ÚtÁsgeir Frank Ásgeirsson
Afturelding
58. mín
Gult spjald

Pedro Vazquez Vinas

Groddaraleg tækling á Kairo
Grindavík
54. mín
Gult spjald

Viktor Guðberg Hauksson

Viktor eitthvað pirraður að hafa gerst brotlegur og grýtir boltanum í jörðina og fær þá gult. Kjánalegt.
52. mín
Tómas fer upp hægri kantinn fyrir gestina og hann fellur við í teignum en aftur dæmir dómarinn ekkert. Heimamenn vilja meina að þetta hafi verið dýfa. Ég verð að viðurkenna að ég sá þetta bara ekki.
50. mín
Grindavík með góða skyndisókn! Langur bolti yfir á hægri til Kairo hann reynir að skæra sig framhjá Aron Elí sem sparka soldið í hann en Kairo ákveður að standa það af sér og tekur skotið sem er varið. Kairo hefði léttilega getað farið niður og það hefði verið bókað víti.
46. mín
Þá fer seinni hálfleikur af stað og það er Afturelding sem byrjar með boltann.
45. mín
Hálfleikur í fínum leik. Frekar daufur til að byrja með en bæði lið byrjuðu að sína meira sem leið á. Vonandi fleiri mörk í þeim seinni.
45. mín
Grindavík með nokkur skot hér fyrir utan teig á lokamínútum hálfleiksins þau fara 2 í varnarmann en síðasta skotið frá Aroni Jóh fer yfir.
44. mín
Ungi strákurinn Hrafn gerir hérna mjög vel! Ýtir sér framhjá varnarmönnum og kemur boltanum yfir á Georg á hægri kantinum en sóknin rennur út í sandinn.
41. mín
Heimamenn að skapa mikla hættu hérna! Georg með sendinguna fyrir á hægri og boltinn fer yfir alla en berst yfir á vinstri kantinn til Sigga Bond. Hann setur boltann inn í teig á Pedro sem er með fínt skot en vel varið hjá Aroni. Bond og Pedro að vinna vel saman
40. mín
Esteve heldur áfram leik
38. mín
Esteve Pena liggur hérna eftir og þarf aðhlynningu. Maður vonar heimamanna vegna að hann sé í lagi, vont að missa markmanninn sinn útaf.
37. mín
Gunnar Bergmann með klaufalegt brot rétt fyrir utan teig vinstra megin. Aron Jóh tekur aukaspyrnuna og Sigurjón með skalla sem fer beint á Esteve Pena. Sigurjón biður um hendi en Afturelding sleppur með þann skrekk.
Afturelding
32. mín
MAAAARK!

Sigurður Gísli Bond Snorrason

Hann þurfti að bíða lengi eftir að fá að taka þetta þar sem Viktor sem fékk aðhlynningu var svo lengi að fara af velli. En Siggi Bond er svellkaldur og sendir Aron í vitlaust horn, rennir honum í neðra vinstra hornið
31. mín
VÍTI!! SIGGI BOND BRUNAR INN Á TEIG OG KLAUFALEGA BROTIÐ Á HONUM
29. mín
Thiago brýtur af sér klaufalega á eigin vallarhelming og heimamenn eiga aukaspyrnu á mjög ákjósanlegum stað. Siggi Bond með mjög fínan bolta inn á teig sem endar í skoti frá Aron að ég held en í varnarmann og Grindavík bægjar hættunni frá.
25. mín
Grindavík örfáum sentimetrum frá því að skora fyrsta mark leiksins! Dagur setur boltann á Kairo fyrir utan teig og hann tekur skotið sem fer í varnarmann og rétt framhjá.
21. mín
Hvernig var þetta ekki mark! Siggi bond sýnir taktana sína og setur hælsendingu upp vinstri kantinn á Aron. Hann kemur með frábæran bolta inn í teig en afur er það Guðfinnur sem nær ekki nógu góðu skoti og boltinn framhjá.
19. mín
Thiago gerir vel hér og setur boltann upp hægri kantinn á Tómas sem er með svakalega mikið pláss. Hann prjónar sig inn á teiginn en skotið hans full auðvelt fyrir Pena í markinu.
18. mín
Grindavík skapar nokkra hættu hérna eftir hornspyrnu. Thiago nær skoti á markið en það eru of margir heimamenn inn í teig og þeir hreinsa frá.
16. mín
Georg með frábæran bolta inn í teig sem Guðfinnur kiksar alveg hrikalega! Þetta hefði að minnsta kosti átt að vera skot á mark.
14. mín
Pedro Vazquez!! geggjað skot fyrir utan teig sem Aron þarf að hafa sig allan við til að verja í horn. Ekkert kom þó úr þessu horni.
12. mín
Kairo tekur alveg hörkusprett up hægri kantinn og vinnur horn. Dagur tekur en heimamenn skalla frá.
9. mín
Grindavík aðeins að finna sig betur núna eftir að hafa snert boltan mjög lítið til að byrja með en núna var það Tómas Leó sem var kominn í fína fyrirgjafastöðu á hægri kantinum en sendingin í varnarmann
7. mín
Leikurinn farið mjög hægt af stað en fyrsta horn leiksins fær Grindavík. Dagur Ingi tók en boltinn var skallaður frá. Hann fær hann aftur og setur boltan inn í teig en skalli gestanna er hreinsaður frá. Fyrsta skot komið allavega.
3. mín
Heimamenn gera það sem þeir hafa verið þekktir fyrir undir stjórn Magga hér í byrjun leiks og það er að halda boltanum mjög vel.
1. mín
Leikurinn fer af stað og það er Grindavík sem byrjar með boltann.
Fyrir leik
Það er frekar kalt og blautt hér í Mosfellsbæ og það sést frekar mikið á mætingunni. Maður hefði vonast eftir fleirum á fyrsta leik mótsins hjá þessum liðum.
Fyrir leik
Þá eru byrjunarliðin komin! Nýir menn í byrjunarliði Aftureldingar eru Esteve Pena, Gunnar Bergmann, Siggi Bond, Guðfinnur Þór, Ásgeir Frank og Andi Hoti. Það eru þá 6 talsins sem voru ekki með í fyrra. Nýir hjá Grindavík eru Thiago Dylan, Kairo Edwards-John, Tómas Leó, Örvar Logi, Dagur Ingi og Vladimir Dimitrovski. Þeir eru líka 6 sem ekki voru með í fyrra. Nóg af nýjum nöfnum í nýjum treyjum og vonandi gæði sem fylgja.
Fyrir leik
Komnir farnir Grindavík Komnir: Kairo Edwards-John frá Þrótti R. Kenan Turudija frá Selfossi Thiago Dylan frá Ítalíu Tómas Leó Ásgeirsson frá Haukum Vladimir Dimitrovski frá Georgíu Örvar Logi Örvarsson frá Stjörnunni (á láni) Dagur Ingi Hammer Gunnarsson frá Þrótti Vogum (var á láni) Hilmar Andrew McShane frá Haukum (var á láni) Farnir: Dion Acoff til Bandaríkjanna Laurens Willy Symons til Belgíu Gabriel Dan Robinson til Bandaríkjanna Jósef Kristinn Jósefsson hættur Oddur Ingi Bjarnason í KV (var á láni) Sigurður Bjartur Hallsson í KR Sindri Björnsson í Leikni R. Tiago í Fram Walid Abdelali til Finnlands Þröstur Mikael Jónasson í Dalvík/Reyni
Fyrir leik
Komnir farnir Afturelding Komnir: Andi Hoti frá Leikni R. (á láni) Ásgeir Frank Ásgeirsson frá Kórdrengjum Esteve Pena frá Spáni Gunnar Bergmann Sigmarsson frá KFG Guðfinnur Þór Leósson frá Víkingi Ólafsvík Sigurður Gísli Bond Snorrason frá Þrótti Vogum Jóhann Þór Lapas frá Elliða (var á láni) Patrekur Orri Guðjónsson frá ÍR (var á láni) Farnir: Alberto Serran Anton Logi Lúðvíksson í Breiðablik (var á láni) Arnór Gauti Ragnarsson til Noregs (var á láni) Birgir Baldvinsson til Leiknis R. (var á láni) Hafliði Sigurðarson í Vængi Júpíters Kristján Atli Marteinsson í Kórdrengi Kristófer Óskar Óskarsson í Magna (var á láni) Sindri Þór Sigþórsson í Árbæ (á láni) Valgeir Árni Svansson til Noregs Ýmir Halldórsson í Breiðablik (var á láni)
Fyrir leik
Spá Fótbolta.net Grindavík 7.sæti Rafn Markús álitsgjafi hafði þetta að segja "Það verður gaman að sjá hvernig Grindavík kemur inn í tímabilið með Alfreð sem þjálfara. Ég tel að Grindvíkingar komi brattir inn í tímabilið. Hafa æft mjög vel og kom því vel undirbúnir til leiks. Grindavík gerði vel með að ráða hann til félagsins. Í honum eru þeir með einstakling sem menn hafa mikla trú á í Grindavík og menn eru tilbúnir að gera margt fyrir hann til þess að ná árangri - hvort sem það er á þessu ári eða síðar. Alfreð er vel liðinn og verður auðvelt að flykkja sér bakvið hann og liðið, eitthvað sem Grindvíkingar þurftu á að halda og stemningin í samfélaginu minnir á þegar Óli Stefán tók við liðinu." Afturelding 10. sæti Úlfur Blandon álitsgjafi hafði þetta að segja "Það virðist vera sterkur og góður andblær í kringum lið Aftureldingar núna. Undirbúningstímabilið hefur gengið ljómandi vel sem ætti að gefa góð fyrirheit fyrir sumarið. Mosfellingar unnu B-Deild Fótbolta.net mótsins og spiluðu þrælflottan fótbolta sem er greinilega að virka fyrir hópinn."
Fyrir leik
Grindavík í fyrra Grindavík enduðu í 7.sæti í fyrra og var það langt fyrir neðan væntingar. Þeir voru aðeins 3 stigum fyrir ofan andstæðinga sína í dag og heilum 21 stigi frá því að fara upp sem stefnan var fyrir tímabil. Markaskorun í fyrra kom næstum einungis frá einum manni en það var hann Sigurður Bjartur Hallson sem gerði 17 mörk á meðan næst markahæsti maður var með 3 mörk. Nú er Sigurður genginn í raðir KR og því verður áhugavert að sjá hvernig markaskorunina í ár. Grindavík hefur einnig skipt um þjálfara en Sigurbjörn Hreiðarsson gerðist aðstoðarþjálfari FH eftir að samningur hans rann út og í hans stað kom Alfreð Elías Jóhannson en hann var þjálfari kvennaliðs Selfossar í fyrra.
Fyrir leik
Afturelding í fyrra Mosfellingar enduðu í 10.sæti í fyrra en voru þó aldrei nálægt falli þar sem þeir enduðu 9 stigum á undan Þrótti sem voru í 11. sæti. Formið hjá Aftureldingu í fyrra var verulega kaflaskipt þar sem þeir ýmist töpuðu stórt og unnu stórt til skiptis. Þeirra 2 efstu markaskorarar eru hinsvegar farnir frá félaginu núna og það verður stórt skarð að fylla en það voru þeir Arnór Gauti Ragnarsson og Kristófer Óskar Óskarsson.
Fyrir leik
Góða kvöldið og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Aftureldingar gegn Grindavík. Þetta er fyrsti leikur liðanna í deildinni og við vonumst eftir hörku slag. Leikurinn hefst klukkan 19:15
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.