Fotbolti.net
Besta deildin
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Besta-deild karla
Kaplakrikavöllur
Kalt, vindur á annað markið. Grasið lítur vel út og það er hellirigning.
FH
FH
2 - 2
Valur
Valur
Ólafur Guðmundsson 20'1 - 01 - 169' Hólmar Örn Eyjólfsson1 - 283' Arnór SmárasonMatthías Vilhjálmsson 89'2 - 2
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Vinirnir glímdu og skoruðu báðir á Kaplakrikavelli

Hvað réði úrslitum?

FH náði að setja talsverða pressu á Val eftir að gestirnir komust yfir. Jafntefli gefur í raun þokkalega mynd af þessum leik sem var mjög kaflaskiptur. FH-ingar voru betri í fyrri hálfleiknum en Valur átti svo virkilega góðan kafla um miðbik seinni hálfleiks þar sem mark lá í loftinu og í kjölfarið kom svo seinna mark gestanna. Það hefði verið ansi svekkjandi fyrir heimamenn að fá ekki neitt úr þessum leik og jafntefli eitthvað sem bæði lið geta verið þokkalega sátt með.

Bestu leikmenn

1. Matthías Vilhjálmsson (FH)

Matthías var öflugur í fremstu línu og jafnaði leikinn með marki undir lokin. Það var gaman að sjá hann glíma við vin sinn Hólmar Örn. Tómas Meyer stóð sig líka frábærlega á sínum fyrsta degi í starfi fjölmiðlafulltrúa og fær 'shoutout' í þessu boxi.

2. Birkir Már Sævarsson (Valur)

Átti risa þátt í seinna mark Vals og bjargaði einu sinni á línu. Vindurinn klikkaði ekki í vindinum.

Atvikið

1-2 markið þegar Arnór Smárason skoraði. Það voru ansi mikil læti í fjölmiðlastúkunni þegar Arnór skoraði.

Hvað þýða úrslitin?

Valur er í toppsætinu sem stendur og er áfram ósigrað. FH réttir aðeins skútunua eftir þungt tap í síðasta leik og getur klárlega byggt ofan á þessa frammistöðu.

Vondur dagur

Patrick Pedersen, ekki alveg dagurinn hans en það skal þó tekið fram að hann fékk ekkert endalaust af þjónustu. Hans besta færi kom í raun eftir gjöf frá Gumma Kri og þá var smá heppni að boltinn hrökk til Hólmars eftir tilraunina í jöfnunarmarkinu. Lennon hefði einnig getað gert mun betur þegar hann fékk dauðafæri einn gegn Guy Smit en brást bogalistin og eiginlega rúmlega það - of laus vippa og boltinn hefði farið framhjá ef Guy hefði látið hann fara.

Dómarinn - 6

Erfiður leikur að dæma, talsvert mikið af spjöldum og tilfinningin var að stundum var verið að flauta á eitthvað sem hafði ekki verið flautað á fyrr í leiknum. Erfitt að meta af hverju sum spjöldin fóru á loft miðað við svo önnur augljósari.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.