Fotbolti.net
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Þróttur V.
Þróttur V.
Lengjudeild karla
Vogaídýfuvöllur
Talsverður vindur úr SV. skúrir og hiti um 6 gráður.
0 - 3
Fjölnir
Fjölnir
0 - 153' Hákon Ingi Jónsson0 - 258' Viktor Andri Hafþórsson 0 - 363' Reynir Haraldsson
Dómari: Arnar Þór Stefánsson

SKÝRSLAN: Fjölnir sótti þrjú stig í Voga

Hvað réði úrslitum?

Aðstæður áttu sinn þátt í því en fyrsta markið gaf Fjölnismönnum aukið sjálfstraust sem þeir nýttu sér í botn til þess að bæta við tveimur góðum mörkum og klára leikinn örugglega.

Bestu leikmenn

1. Dagur Ingi Axelsson

Ég hreifst af Degi úti hægra meginn hjá Fjölni. Áræðinn og óhræddur við að keyra á sinn mann, lunkinn með boltann og uppskar stoðsendingu fyrir vikið.

2. Guðmundur Karl Guðmundsson

Alltaf gaman að sjá Gumma spila fótbolta. Átti fínan leik í dag ásamt nokkrum öðrum þó en Gummi tekur þetta þennan daginn.

Atvikið

Annað markið var glæsilegt og slökkti í vonum Þróttara. Viktor Andri Hafþórsson fær boltann á miðjum vallarhelmingi Þóttar, snýr í átt að marki og rekur boltann aðeins áfram áður en hann lætur vaða á markið og boltinn syngur í netinu.

Hvað þýða úrslitin?

Fjölnir með þrjú stig að lokinni fyrstu umferð en Þróttu núll. Lítið meira um það að segja.

Vondur dagur

Pablo Gállego Lardiés fór illa með algjört dauðafæri í fyrri hálfleik þegar hann slapp einn gegn Sigurjóni sem varði frá honum. Hefði svo sannarlega geta breytt þróun leiksins.

Dómarinn - 7

Fínt hjá Arnari ekki margar stórar ákvarðanir sem hann þurfti að taka. Spjaldaði reyndar vitlausan mann á einum tímapunkti en leiðrétti það í snarhasti svo það kom ekki að sök
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.