Fotbolti.net
Haraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Lengjudeild karla
Malbikstöðin að Varmá
Kalt og blautt
Afturelding
Afturelding
1 - 1
Grindavík
Grindavík
Sigurður Gísli Bond Snorrason (víti) 32'1 - 01 - 171' Aron Jóhannsson
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason

SKÝRSLAN: Týpískur leikur tveggja hálfleika í Mosfellsbæ

Hvað réði úrslitum?

Dómarinn að vissu leiti þar sem Grindvíkingar hefðu líkast til átt að fá mark þegar það var dæmd rangstæða og hefðu líka getað fengið víti. Annars var þetta jafn leikur þar sem heimamenn voru betri í fyrri og gestirnir betri í seinni

Bestu leikmenn

1. Sigurður Gísli Bond Snorrasson (Afturelding)

Fiskaði víti og skoraði úr því. Sýndi gæði sín í fyrri hálfleik með nokkrum mjög góðum sendingum en dalaði aðeins í seinni hálfleik.

2. Kairo Edwards-John (Grindavík)

Öskufljótur upp kantana og með þónokkur trix til að plata varnarmenn. Dómarinn hefði getað verið skemmtilegri við hann þá hefði kannski farið öðruvísi

Atvikið

Fyrirgjöf Sigga Bond á lokasekúndum leiksins virtist vera á leiðinni inn þar sem boltinn sveif yfir Aron Dag í markinu en boltinn fór í mann sem mínar heimildir vilja meina hafi verið Guðfinnur Þór samherji Sigga og skoppaði frá markinu.

Hvað þýða úrslitin?

Bæði lið byrja tímabilið á einum punkt og fara bæði svekkt frá.

Vondur dagur

Aron Elí Sævarsson en þó aðeins varnarlega. Hann var mjög flottur í uppspili heimamanna en skildi eftir sig mjög stór svæði í vörninni sem Kairo reyndi að nýta sér nokkrum sinnum og var óheppinn að skora ekki.

Dómarinn - 3

Mínar heimildir segja að dómarateymið hafi verið með eiginlega allar stóru ákvarðanirnar rangar t.d. vítaspyrnudóm sem hann sleppti og rangstöðumark sem var ekki rangstæða. Svo missti hann soldið tökin í lokin þegar tæklingar byrjuðu að fljúga.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.