Fotbolti.net
@Johannthor21Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þór
Þór
Lengjudeild karla
Boginn
1 - 0
Kórdrengir
Kórdrengir
Harley Bryn Willard 88'1 - 0
Dómari: Sveinn Arnarsson
Leik lokið!
Leik lokið! Viðtöl og skýrsla væntanleg síðar í kvöld.
90. mín
Fatai Gbadamosi fékk frábæran séns þarna. Skot hans við vítateigs línuna. Aron snöggur niður og nær að grípa.
Þór
90. mín
Gult spjald

Jewook Woo

Dæmdur rangstæður og sparkar boltanum í fangið á Óskari og fær spjald.
Kórdrengir
89. mín
Gult spjald

Fatai Adebowale Gbadamosi

Þór
88. mín
MAAAARK!

Harley Bryn Willard (stoðsending: Jewook Woo)

ÞÓRSARAR ERU KOMNIR YFIR!" Glæsileg stungusending frá Jewook Woo á Willard sem skorar framhjá Óskari!
86. mín
Sammie McLeod með hörku skot en Óskar ver vel í horn.
Kórdrengir
86. mín
InnMarinó Hilmar Ásgeirsson
ÚtDaði Bergsson
Kórdrengir
83. mín
InnÓskar Atli Magnússon
ÚtKristófer Jacobson Reyes
Þór
83. mín
InnSigurður Marinó Kristjánsson
ÚtOrri Sigurjónsson
79. mín
Arnleifur lagði boltann á Daða sem á skot hátt yfir.
78. mín
Nikola Kristinn fær á sig aukaspyrnu fyrir hættuspark. Skotfæri fyrir Kórdrengi!
76. mín
Fyrirgjöf hjá Kórdrengjum en þrír leikmenn missa af boltanum. Illa farið með færi hjá þeim þarna!
73. mín
Kórdrengir fá hornspyrnu.
Þór
68. mín
InnSammie Thomas McLeod
ÚtAron Ingi Magnússon
Kórdrengir
66. mín
Gult spjald

Guðmann Þórisson

Allt kolvitlaust í stúkunni. Guðmann rennir sér fyrir skot hjá Bjarna og virtist greinilega fá hann í hendurnar, Sveinn metur væntanlega svo að þær hafi verið í náttúrulegri stöðu.
63. mín
Aron Ingi þarf aðhlynningu eftir baráttu í teignum, Þórsarar í stúkunni vildu fá vítaspyrnu en ekkert dæmt.
62. mín
Á meðan ég skrifaði síðustu færslu virtist Óskar fara í úthlaup og boltinn rataði á Bjarna Guðjón en hann hittir ekki boltann.
61. mín
Bjarni Guðjón brunar upp í skyndisókn eftir hornspyrnu frá Kórdrengjum. Fer illa að ráði síu og setur boltann beint á Óskar.
56. mín
mjög lokaður leikur, færin eru bara að koma úr föstum leikatriðum.
52. mín
Willard með fínt skot fyrir utan teiginn en Óskar grípur boltann.
Kórdrengir
50. mín
Gult spjald

Guðmann Þórisson

Rífur Woo niður sem er að sleppa í gegn.
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn.
45. mín
+3 Kominn hálfleikur!
Kórdrengir
45. mín
Gult spjald

Daði Bergsson

+1
42. mín
Kristófer Kristjánsson í dauðafæri en setur boltann framhjá.
38. mín
Jewook Woo með skotið, hefði sennilega viljað snúa boltanum í fjær en hann fer beint á Óskar.
37. mín
Daníel að komast í ákjósanlegt færi en Bjarki Þór gerir vel í að tækla boltann í horn. Ekkert kom útúr horninu.
33. mín
Þórsarar fengu tvær tilraunir en boltanum sparkað frá í seinna skiptið.
32. mín
Þór fær hornspyrnu.
26. mín
Isou Villar í fínu færi, tekur viðstöðulaust skot framhjá markinu.
25. mín
Arnleifur með aukaspyrnu, fyrirgjöf frá vinstri. Guðmann nær hörku skalla en beint á Aron Birki.
23. mín
Harley Willard var skyndilega kominn hérna í hörku færi en skýtur beint á Óskar úr þröngu færi.
Þór
22. mín
InnJewook Woo
ÚtFannar Daði Malmquist Gíslason
20. mín
Fannar Daði liggur hérna sárþjáður eftir baráttu gegn Daníel Gylfasyni. Það er hnéið, hann festi sig í grasinu.
18. mín
Eftir fína byrjun hefur aðeins róast yfir þessu. Menn eru að láta nappa sig í rangstöðunni og boltinn að fara mikið í loftið á Boganum.
14. mín
Minni fótbolti, meiri barátta þessa stundina. Menn láta vel í sér heyra, innan sem utan vallar.
10. mín
Boltinn berst aftur til Daða sem tók hornið. Hann á aðra fyrirgjöf sem ratar á kollinn á Guðmanni en boltinn framhjá.
9. mín
Birgir Ómar með misheppnaðan skalla til baka á Aron Birkir og boltinn endar í horn.
8. mín
Willard með aukaspyrnu. Sendir boltann fyrir þar sem Elvar Baldvinsson stekkur hæst en skallinn hans rétt framhjá!
6. mín
Isou Villar í færi!! FÆr boltann í vítateignum eftir að varnarmaður Þórs skallaði boltann frá. Skotið hans hins vegar framhjá markinu.
2. mín
Harley Willard með skotið við D-bogann en auðvelt fyrir Óskar í marki Kórdrengja.
1. mín
Gestirnir byrja með boltann.
Fyrir leik
Fyrir leik
Fyrir leik
Byrjunarliðin Harley Willard er í byrjunarliðinu hjá Þór í sínum fyrsta deildarleik með félaginu. Í byrjunarliðinu eru Aron Ingi Magnússon, Kristófer Kristjánsson og Bjarni Guðjón Brynjólfsson en þeir eru allir fæddir árið 2004. Guðmann Þórisson leiðir Kórdrengi inná völlinn með fyrirliðabandið í sínum fyrsta leik í deildinni með félaginu eftir komuna frá FH í vetur. Bjarni Guðjón Brynjólfsson
Fyrir leik
Davíð Smári Lamude þjálfari Kórdrengja mun ekki vera á hliðarlínunni í dag. Hann var dæmdur í bann undir lok síðasta árs. Heiðar Helguson aðstoðarþjálfari liðsins stýrir liðinu í hans fjarveru. Heiðar Helguson
Fyrir leik
Dómarar Sveinn Arnarsson er með flautuna í dag. Honum til aðstoðar verða þeir páll Valþór Stefánsson og Aðalsteinn Tryggvason. Magnús Sigurður Sigurólason er eftirlitsmaður KSÍ.
Fyrir leik
Ferskur andblær í þorpinu Þórsurum er spáð sjötta sæti í deildinni í ár en liðið hafnaði í 9. sæti í fyrra. Það hafa orðið miklar breytingar á liðinu, Þorlákur Árnason er tekinn við sem þjálfari liðsins en hann var síðast í uppbyggingastarfi í Hong Kong. Hann mun vera með ungan og spennandi hóp til að vinna með. Þá fékk hann til sín Je Wook Woo frá Suður Kóreu en þjálfarar tala um að það sé besti leikmaður Lengjudeildarinnar í langan tíma.
Fyrir leik
Rétt missa af Bestu Samkvæmt spá Fótbolta.net fyrir tímabilið munu Kórdrengir rétt missa af sæti í Bestu deildinni og enda í 3. sæti. Liðið hefur náð ótrúlegum árangri á stuttum tíma en liðið spilaði fyrst í deildakeppni KSÍ árið 2017 og endaði í 4. sæti á sínu fyrsta tímabili í næst efstu deild í fyrra.
Fyrir leik
Góða kvöldið og verið velkomin í beina textalýsingu á leik Þórs og Kórdrengja í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar. Leikurinn fer fram í Boganum á Akureyri og hefst kl 18.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.