Leik lokið!
Rosalegum leik lokið! Eitt stig á lið í kvöld.
93. mín
Gult spjald
Haukur Páll Sigurðsson
Tvö brot á nánast sömu sekúndunni.93. mín
Gult spjald
Patrick Pedersen
93. mín
Birkir Heimis með skot með vinstri sem fer í varnarmann FH.
92. mín
Gult spjald
Guðmundur Kristjánsson
Vilhjálmur veitti fyrst hagnað en svo þegar leikurinn stoppaði fékk Gummi gult.91. mín
Þremur mínútum bætt við.
90. mín
InnHaraldur Einar Ásgrímsson
ÚtBjörn Daníel Sverrisson
89. mín
MAAAARK!
Matthías Vilhjálmsson
FH JAFNAR!!! Boltinn fellur til Matthíasar inn á vítateig Vals, örlítið hægra megin, og hann skorar með skoti með hægri fæti sem fer í fjærhornið framhjá Guy í markinu.88. mín
Kristinn Freyr með fyrirgjöfina og Oliver skallar en beint í hendurnar á Guy.
87. mín
Baldur Logi með skot sem Birkir Már hendir sér fyrir.
86. mín
InnBaldur Logi Guðlaugsson
ÚtÓlafur Guðmundsson
85. mín
Ástbjörn með fyrirgjöf sem fer beint í hendurnar á Guy.
83. mín
MAAAARK!
Arnór Smárason (stoðsending: Orri Hrafn Kjartansson)
Gestirnir eru komnir yfir!! Frbær sprettur hjá Birki Má í aðdragandanum. Orri Hrafn með skot/sendingu með vinstri og boltinn endar hjá Arnóri sem stýrir boltanum í netið af stuttu færi. Annað sigurmarkið hjá Arnóri í sumar?82. mín
Gult spjald
Ólafur Davíð Jóhannesson
Ósáttur við að Ólafur Guðmunds fékk ekki aukaspyrnu.80. mín
InnHaukur Páll Sigurðsson
ÚtTryggvi Hrafn Haraldsson
80. mín
InnHeiðar Ægisson
ÚtAron Jóhannsson
79. mín
Gult spjald
Björn Daníel Sverrisson
Mörg spjöld í dag.78. mín
Gult spjald
Jesper Juelsgård
FH reynir sendingu í gegn en Juelsgård tekur boltann með hendinni og fær spjald.77. mín
Ástbjörn með fyrirgjöfina og boltinn hrekkur til Kristins sem reynir bakfallsspyrnu og boltinn rétt framhjá marki Vals.
76. mín
InnOliver Heiðarsson
ÚtMáni Austmann Hilmarsson
75. mín
Gult spjald
Steven Lennon
Stöðvar hraða sókn.74. mín
InnArnór Smárason
ÚtÁgúst Eðvald Hlynsson
73. mín
FH á hornspyrnu. Lennon með hornspyrnuna, finnur Guðmund sem skallar en skallinn rataði ekki á markið.
71. mín
Ástbjörn með skot eftir fína sókn FH. Boltinn fer af varnarmanni Vals og FH á hornspyrnu.
69. mín
MAAAARK!
Hólmar Örn Eyjólfsson (stoðsending: Patrick Pedersen)
Valsmenn jafna! Valur á hornspyrnu. Boltinn frá Juelsgård finnr Aron sem er galopinn á nærstönginni. Aron flikkar boltann yfir á Patrick sem á tilraun sem fer í stöngina og boltinn fellur fyrir Hólmar inn á markteignum og fyrirliðinn skorar. Þetta mark lá svolítið í loftinu.67. mín
Aron klifrar upp á bakið á varnarmanni FH og er dæmdur brotlegur inn á vítateig FH.
67. mín
Aron Jó fyrst með geggjaða skiptingu af hægri kantinum yfir á þann vinstri. Orri Hrafn tekur við boltanum þar og boltinn berst til Arons aftur. Aron lætur vaða en Björn Daníel kemst fyrir skotið.
Valsmenn aðeins að bæta í og eiga hornspyrnu núna.
65. mín
Kristinn Freyr með flotta vippu með vinstri inn á Lennon sem á skot en Guy sér við honum. Frábært spil en vantaði upp á slúttið.
63. mín
Orri Hrafn að gera sig líklegan. Á skottilraun sem Gunnar ver og handsamar svo í annarri tilraun.
63. mín
Mikið verið að kalla eftir aukaspyrnum síðustu mínútur en lítið flautað og menn yfirleitt ósáttir ef Vilhjálmur ákveður að stoppa leikinn.
60. mín
InnOrri Hrafn Kjartansson
ÚtGuðmundur Andri Tryggvason
59. mín
Guðmundur Andri virðist ekki geta haldið leik áfram. Settist niður í grasið og þarf á aðhlynningu að halda. Helgi Sig kallar á Orra Hrafn sem er væntanlega að koma inn á.
58. mín
Óli Guðmunds með flotta varnartilburði og FH-ingar í stúkunni eru ánægðir með þetta.
57. mín
Lennon í daaaaauuuuuðaafæri!!!
Mistök í öftustu línu Vals. Kiddi sér að Lennon er með mikið pláss og finnur hann í gegn. Guy kemur út að vítateigslínu og Lennon reynir að vippa en vippan er slök og Guy nær að handsama boltann sem var á leið aftur fyrir endamörk.
56. mín
Gult spjald
Matthías Vilhjálmsson
Brýtur á Birki Heimis. Valsmenn eru svo dæmdir rangstæðir í aukaspyrnunni í kjölfarið.54. mín
Færi!
Björn Daníel með spyrnuna, finnur Matthías inn á teignum og Matthías með gott skot sem Guy ver upp í loftið og Birkir Már hreinsar svo í burtu. Þarna var hætta!
53. mín
Hólmar dæmdur brotlegur og FH-ingar eiga aukaspyrnu á vallarhelmingi Vals.
49. mín
Birkir Heimis með skot eftir sendingu frá Aroni Jó. Gott skot sem Gunnar þarf að skutla sér til að verja og ver boltann í horn.
Ekkert kom upp úr horninu.
49. mín
Smá bras á heimamönnum inn á eigin vítateig en þeir koma boltanum í burtu.
48. mín
Tryggvi vinnur hornspyrnu fyrir Val.
Spyrnan frá Juelsgård í fyrsta heimamann.
47. mín
Guðmundur Andri og Tryggvi eru búnir að skipta um kant hjá Val. Tryggvi er núna úti hægra megin.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn. Aron Jó með upphafssparkið fyrir Val.
Það hefur aðeins gleymst að taka fram að það er hellirigning.
45. mín
Fyrri hálfleik er lokið. Ég er ekki frá því að forystan sé svolítið verðskulduð.
Valur mun spila með vindi í seinni hálfleik. Spurning hvort það hafi áhrif.
45. mín
45+1
Birkir með aukaspyrnu inn á vítateig FH en spyrnan er of löng og beint í hendurnar á Gunnari.
45. mín
Einni mínútu bætt við fyrri hálfleikinn.
44. mín
Gult spjald
Birkir Heimisson
Braut á Kristni inn á miðsvæðinu.44. mín
Björn Daníel með spyrnuna á nærstöngina og þar er Guy klár í að kýla í burtu. Valsmenn hreinsa svo eftir aðra fyrirgjöf frá Birni.
43. mín
Máni með fyrirgjöf eftir stutta sendingu frá Kristni inn á teignum. Boltinn í Juelsgård og FH á hornspyrnu.
Kristinn og Máni að tengja vel saman.
40. mín
FH-ingar í frábærri sókn!
Kristinn Freyr með gott flikk á Mána sem var í góðu hlaupi. Máni reynir skot sem fer í Birki Heimisson og Valsmenn bægja svo hættunni frá. Vel gert hjá Birki!
39. mín
Skársta hornspyrna Valsara til þessa held ég. Boltinn fer af Valsara og aftur fyrir.
38. mín
Patrick Pedersen í daaauuuuðafæri eftir að Guðmundur Kristjánsson klikkaði í öftustu línu.
Patrick er úti hægra megin í teignum og lætur vaða. Gunnar sér við honum og Valsarar eiga hornspyrnu.
37. mín
Gult spjald
Davíð Snær Jóhannsson
Fyrir að grípa í mjöðmina á Valsara.36. mín
Virkilega vel gert hjá Mána Austmanni inn á vítateig Vals. Hann kom sér í fínasta skotfæri og lét vaða með vinstri. Guy varði boltann til hliðar og í kjölfarið voru heimamenn dæmdir rangstæðir.
34. mín
Skot á mark frá Ágústi sem Gunnar handsamar í annari tilraun. Fínasta spil hjá Valsmönnum en lykilfyrirgjöf frá Tryggva var fyrir aftan Guðmund Andra og við það versnaði færið sem Valur fékk.
33. mín
Gunnar heppinn þarna, fékk á sig pressu frá Aroni sem náði að koma fæti í sendinguna sem ætluð var Guðmundi. Boltinn kemst á Guðmund og FH-ingar leysa pressuna.
31. mín
Valur á hornspyrnu.
Aftur skapast engin hætta og að lokum eru gestirnir dæmdir brotlegir eftir fyrirgjöf númer tvö.
31. mín
Fyrirgjöf frá Kristni Frey sem Hólmar skallar til baka og Guy handsamar.
30. mín
Gult spjald
Sebastian Starke Hedlund
Hedlund brýtur á Matthíasi við miðlínu.29. mín
Aron Jó með flotta takta gegn Ástbirni en FH vinnur boltann fljótlega í kjölfarið. Björn Daníel keyrir inn á teig Vals og lætur vaða með hægri fæti. Fínasta skot frá Birni en Guy með þetta allt á hreinu.
28. mín
Guðmundur Kristjáns kemst framfyrir Patrick og vinnur boltann inn á vallarhelmingi Vals. Hann tekur tvær snertingar og lætur vaða. Skotið fer yfir mark FH en tilraunin alls ekki svo galin.
25. mín
Gult spjald
Guðmundur Andri Tryggvason
Juelsgård með fyrirgjöf eftir innkastið og í stað þess að skalla reynir Guðmundur Andri að stýra boltanum í netið með höndinni. Boltinn fer í slána og Andri fer í bókina.25. mín
Juelsgård með fyrirgjöf sem Ástbjörn kemst fyrir og Ástbjörn þrumar svo boltanum í innkast.
22. mín
Valur fær hornspyrnu en það mislukkaðist eitthvað og ekkert kom upp úr þessari útfærslu.
20. mín
MAAAARK!
Ólafur Guðmundsson (stoðsending: Guðmundur Kristjánsson )
FH ER KOMIÐ YFIR! Björn Daníel tekur aukaspyrnuna, finnur Guðmund Kristjánsson inn á teignum, Gummi skallar boltann áfram inn á miðjan teiginn og þar er Ólafur sem skallar boltann niður í vinstra markhornið. Ekkert sérstakur varnarleikur þetta hjá Sebastian Hedlund sem var í baráttunni inn á teignum.19. mín
Birkir brýtur á Mána en sleppur við spjald. FH-ingar lítið hrifnir.
19. mín
Góð skipting út á Ástbjörn úti hægra megin en fyrirgjöfin frá bakverðinum beint í hendurnar á Guy.
17. mín
Ágúst Eðvald með mjög lélega sendingu fram á við, fer yfir alla og í hendurnar á Gunnari. Skrítin pæling eða hitti boltann illa.
15. mín
Skemmtilegir taktar hjá Kristni Frey en því miður kom ekkert alvöru upp úr þessu eftir að hann lék á leikmann Vals á miðsvæðinu.
Skömmu síðar er Finnur Orri með góðan varnarleik þegar hann nær boltanum af Tryggva inn á vítateig FH.
15. mín
Tryggvi Hrafn með boltann úti vinstra megin og rennir honum á Aron sem á skot sem varnarmenn FH komast fyrir.
14. mín
Ekkert kom upp úr þessari hornspyrnu - Hedlund komst reyndar í boltann en allavega engin hætta.
13. mín
Guðmundur Andri fær boltann úti hægra megin, rennir honum út og við vítateigslínuna er Tryggvi Hrafn sem lætur vaða. Skotið hjá Tryggva fer af varnarmanni og Valur á horn.
11. mín
Smá vesen á FH-ingum inn á eigin vítateig, Gunnar nálægt því að fara í Patrick en Björn Daníel sópar upp og hreinsar.
10. mín
Ástbjörn með fínan sprett úti hægra megin og kemst inn á vítateiginn. Smá misskilningur milli hans og Lennon og því kom ekkert skot á mark Vals.
9. mín
Davíð Snær með mislukkaða sendingu við vítateig FH og Tryggvi kemst í boltann. Tryggvi reynir skot en það fer framhjá marki FH.
8. mín
Jesper með boltann inn á vítateig FH en boltinn fer of innarlega og Gunnar grípur boltann.
7. mín
Brotið á Aroni Jó sem liggur eftir í annað sinn í leiknum. Valur á aukaspyrnu á vallarhelmingi FH.
4. mín
FH-ingar sækja með vindi í fyrri hálfleik.
3. mín
Birkir Már með fyrirgjöf sem Patrick rétt missir af.
2. mín
Byrjunarlið Vals:
Guy
Birkir M - Hedlund - Hólmar - Juelsgård
Birkir H - Ágúst
Guðmundur - Aron - Tryggvi
Patrick
Valsmenn eru í rauðum treyjum og hvítum stuttbuxum.
1. mín
Byrjunarlið FH:
Gunnar
Ástbjörn - Finnur - Guðmundur - Ólafur
Davíð - Björn Daníel
Máni - Kristinn - Lennon
Matthías
FH er í hvítum búningum og svörtum stuttbuxum.
1. mín
Kristinn Freyr byrjar leikinn fyrir FH.
Fyrir leik
Það er kalt í Hafnarfirðinum í dag. Smá vindur og svona fimm gráðu hiti.
Fyrir leik
Byrjunarliðin hafa verið opinberuð:
Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH, gerir þrjár breytingar á liði sínu frá síðasta leik. Davíð Snær Jóhannsson sem kom frá Lecce í gær kemur beint í byrjunarliðið og Kristinn Freyr Sigurðsson kemur inn eftir að hafa tekið út leikbann. Þá kemur Finnur Orri Margeirsson inn eftir að hafa misst af síðasta leik vegna meiðsla.
Það vekur athygli að Vuk Oskar Dimitrijevic er ekki í leikmannahópi FH í dag. Logi Hrafn Róbertsson meiddist gegn Blikum og er því ekki með í dag. Þeir Oliver Heiðarsson og Baldur Logi Guðlaugsson taka sér sæti á bekknum.
Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, gerir enga breytingu á sínu liði. Sigurður Egill Lárusson er áfram utan hóps. Siggi hefur m.a. verið orðaður við skipti í FH.
Fyrir leik
Nýtt FH lag eftir Frikka Dór!


Fyrir leik
Lasse Petry ekki kominn með leikheimild
Miðjumaðurinn Lasse Petry var í dag tilkynntur sem nýr leikmaður FH en hann lék með Val tímabilin 2019-20. Hann er ekki kominn með leikheimild og verður því ekki með í dag.

Fyrir leik
Viðar spáir hjólhestaspyrnu og jafntefli
Viðar Örn Kjartansson er spámaður umferðarinnar hér á Fótbolti.net. Hann spáir 2-2 jafntefli og að þeir Aron Jóhannsson og Matthías Vilhjálmsson skori.
,,Stál í stál. FH koma til baka eftir skell í Kóp. Matti Villa skorar úr hjólhestaspyrnu. Aron Jó jafnar og Hólmar fær gult fyrir munnsöfnuð," spáir Viðar.

Fyrir leik
Dómarateymið
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson heldur um flautuna í dag og honum til aðstoðar eru þeir Birkir Sigurðarson og Eðvar Eðvarðsson. Halldór Breiðfjörð Jóhannsson er eftirlitsmaður KSÍ og Jóhann Ingi Jónsson er skiltadómari.


Fyrir leik
Síðasta umferð: Kristinn Freyr snýr til baka
FH tapaði 3-0 gegn Breiðabliki í síðustu umferð. Frá þeim leik endurheimtir liðið Kristin Frey Sigurðsson, fyrrum leikmann Vals, úr leikbanni og þá tilkynnti félagið um komu Davíðs Snæs Jóhannssonar frá ítalska félaginu Lecce í gær. Finnur Orri Margeirsson var meiddur gegn Breiðabliki og spurning hvort hann verði klár í slaginn.
Valur vann 2-1 heimasigur gegn KR eftir að hafa lent 0-1 undir. Patrick Pedersen og Jesper Juelsgård sáu um markaskorunina. Það vakti athygli í þeim leik, líkt og gegn Keflavík í 2. umferð, að Sigurður Egill Lárusson var ekki í leikmannahópi Vals.
Kristinn Freyr
Kristinn FreyrFyrir leik
Það er komið að fyrsta leik í fjórðu umferð Bestu deildar karla og hefst veislan í Kaplakrika þar sem FH tekur á móti Val.
FH er með þrjú stig eftir þrjá leiki og Valur er með níu stig - fullt hús.
Úr síðasta heimaleik FH
Úr síðasta heimaleik FH



