Leik lokið!
Fjölnir fer með sigur af hólmi hér í Vogum. Tiltölulega jafn fyrri hálfleikur en aðeins eitt lið mætti út í þann seinni og hirðir stigin þrjú og það nokkuð sanngjarnt.
92. mín
Gult spjald
Jón Jökull Hjaltason
90. mín
Þetta er að fjara út í rólegheitum hérna í Vogum. Þægilegur útisigur er held ég óhætt að tala um sem staðreynd.
88. mín
InnDavíð Júlían Jónsson
ÚtJames William Dale
85. mín
InnBjarni Þór Hafstein
ÚtDagur Ingi Axelsson
82. mín
Gult spjald
Alexander Helgason
Fyrir brot á Dofra.78. mín
Heimamenn fá hornspyrnu.
Ekkert verður úr horninu.
76. mín
InnJúlíus Mar Júlíusson
ÚtVilhjálmur Yngvi Hjálmarsson
76. mín
InnNikola Dejan Djuric
ÚtOliver James Kelaart Torres
76. mín
InnAlexander Helgason
ÚtPablo Gállego Lardiés
76. mín
Aftur endar boltinn í netinu eftir horn frá Reyni en Arnar flautar brot.
75. mín
Arnar Númi fer vel með boltann og leikur á tvo Þróttara áður en hann finnur Dag í teignum sem á skot sem Rafal ver í horn.
74. mín
Kedman með fyrirgjöf frá hægri en þar er enginn nema Sigurjón að fara að hirða boltann.
70. mín
Virkar voðalega þægilegt fyrir Fjölnismenn þessa stundina. Halda boltanum vel og láta hann ganga kanta á milli. Þóttur lítið boðið upp á sóknarlega í síðari hálfleik.
64. mín
Dagur aftur að vinna sig í færi en skot hans úr þröngu færi framhjá markinu.
Stendur ekki steinn yfir steini hjá heimamönnum núna og Eiður og Brynjar reyna að öskra menn í gang.
64. mín
InnArnar Númi Gíslason
ÚtViktor Andri Hafþórsson
63. mín
MAAAARK!
Reynir Haraldsson
Beint úr hornspyrnunni! Vindurinn með Breiðhyltingnum þarna en engu að síður gríðarlega vel gert. Setur boltann upp í vindinn sem sér um rest og feykir boltanum í fjærhornið.62. mín
Gestirnir fá horn. Dagur með boltann í teignum en skot hans af varnarmanni og afturfyrir.
58. mín
MAAAARK!
Viktor Andri Hafþórsson
Fær boltann á miðjum vallarhelmingi Þóttar, snýr í átt að marki og rekur boltann aðeins áfram áður en hann lætur vaða á markið og boltinn syngur í netinu. Rafal framarlega í markinu og varnarlaus í raun.55. mín
Reynir með aukaspyrnuna upp í vindinn sem feykir henni í átt að marki þar sem Raffal á í smá basli en slær boltann frá í horn.
54. mín
Gult spjald
James William Dale
Kedman fær spjaldið fyrst en Arnar fær skilaboð um að hann væri að spjalda rangann mann og hreinsar upp eftir sig.53. mín
MAAAARK!
Hákon Ingi Jónsson (stoðsending: Dagur Ingi Axelsson)
Boltinn settur upp í hornið hægra megin fyrir Dag að elta, hann með boltann og tíma til að horfa inn á teiginn finnur Hákon í hlaupinu sem vinnur sig framfyrir varnarmann og setur boltann í netið af stuttu færi.50. mín
Fer rólega af stað hér á Vogaídýfuvellinum. Baráttan framar öllu öðru.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Heimamenn hefja leik og nú gegn vindinum sem þó hefur lægt talsvert.
45. mín
Flautað til hálfleiks hér í Vogum og staðan markalaus. Vindurinn að hafa talsverð áhrif á leikinn en það er að lægja og sólin að brjótast fram.
45. mín
Viktor Andri í frábæru færi í teignum en Rafal mætir vel út og lokar á hann. Hornspyrna.
41. mín
Framkvæmdin léleg og skilar engu. Heimamenn hreinsa
40. mín
Gestirnir fá aukaspyrnu á álitlegum stað.
38. mín
Aðstæður að lita leikinn þessa stundina. Kominn líka smá hiti í menn. Og ekk vanþörf á enda ansi svalt.
33. mín
Heimamenn að eflast. Kedman með skot af vítateigshorni sem Sigurjón ver í horn aftur.
33. mín
Pablo í dauðafæri einn gegn Sigurjóni en sá síðarnefndi mætir út á móti og ver í horn.
32. mín
Gult spjald
Guðmundur Þór Júlíusson
Gult spjald fór á loft eftir brotið. Pakkinn í kringum Arnar þéttur en sýnist það vera Guðmundur Þór sem fær það32. mín
Spyrnan frá Pablo alls ekki til útflutnings og hátt yfir markið.
31. mín
Michael Kedman með laglegan sprett og brotið á honum við D-bogan. Hættulegur staður.
28. mín
Rafal í klaufalegt úthlaup og lendir í árekstri við Dag Inga og missir boltann. Heimamenn stálheppnir að Fjölnismenn ná ekki að gera sér mat úr þessu.
25. mín
Pablo Gállego Lardiés í ágætu færi í teig Fjölnis en nær ekki að leggja boltann almennilega fyrir sig og skotið eftir því. Laflaust og framhjá.
20. mín
James Dale með vonda sendingu á eigin vallarhelmingi. Dagur Ingi með ágætis svæði úti hægra megin keyrir í átt að marki en helst til bráður á skotinu og setur boltann framhjá markinu.
18. mín
Hákon fær boltann í teig Þróttar, nær snúningnum og skoti en boltinn beint í fang Rafal.
16. mín
Gestirnir fá hornspyrnu.
14. mín
Dagur Guðjónsson með áhugaverða tilraun fyrir heimamenn, freistar þess að taka boltann á lofti eftir aukaspyrnu en hittir boltann afar illa settur hann hátt upp í loft og hvergi nærri markinu.
11. mín
Viktor Andri með fínustu tilraun úr D-boganum fyrir gestina. Fast skot með jörðinni en Rafal ver vel.
9. mín
Vilhjálmur Yngvi fyrstur á boltann eftir aukaspyrnu frá hægri en skallar boltann yfir markið.
6. mín
Gummi Kalli með fyrsta skot gestaliðsins. Af löngu færi og vel yfir markið.
4. mín
Pablo í kapphlaupi um boltann eftir að Fjölnismenn tapa honum á hættulegum stað. Sendingin of föst og beint til Sigurjóns.
3. mín
Heimamenn með fyrsta horn leiksins.
Vindurinn tekur þennann og feykir beint afturfyrir aftur.
Sigurjón spyrnir frá marki.
1. mín
Þetta er farið af stað hér í Vogum. Það eru gestirnir sem hefja hér leik og sækja gegn vindinum hér í fyrri hálfleik.
Fyrir leik
Aðstæður
Völlurinn er grænn og í fínu standi. Stemmingin sömuleiðis fín eins og segir í fyrri færslu. Það eina sem Vogamenn hafa ekki stjórn á er veðrið aldrei þessu vant. Ágætlega stífur vindur blæs úr suðvestri og gengur á með skúrum í 5-6 stiga hita. Stórfurðulegt í sjálfu sér því ég hef ekki heyrt annað en að veðrið hér sé alltaf með ágætum.
Fyrir leik
Hátíðarstemming í Vogum
Það er ekki ofsögum sagt að það ríki ákveðin hátíðarstemming hér í Vogum fyrir leik kvöldsins. Fólk á skrafi á pallinum hér við völlinn og bros á hverju andliti. Marteinn og hans menn bera í mann kræsingar hér í blaðamannaboxið og allt upp á 10 enda Vogamenn höfðingjar heim að sækja og gestrisnir með eindæmum.
Fyrir leik
Þróttur
Þróttur er í fyrsta sinn í sögunni í næstefstu deild. Liðið vann 2. deild í fyrra en leikmannahópurinn er talsvert breyttur frá síðasta tímabili og spáðu allir Þrótti neðsta sæti í spánni. Liðið tók 22 stig á heimavelli í fyrra og tuttugu stig á útivelli. Liðið náði í 24 stig í fyrri hlutanm og átján stig í þeim seinni.
Eiður Ben Eiríksson tók við liðinu af Hermanni Hreiðarssyni í vetur og er á leið í sitt fyrsta tímabil sem þjálfari meistaraflokks karla síðan 2014 þegar hann var þjálfara Vængja Júpíters. Eiður hefur verið annar af þjálfurum Vals síðustu ár. Valur varð Íslandsmeistari tímabilin 2019 og 2021 þegar þeir Pétur Pétursson og Eiður Ben voru saman þjálfarar.
Eins og áður segir spáir Fótbolti.net Þrótturum 12.sæti og þar með falli aftur í 2.deild. Gefum sérfæðingunum orðið.
,,Það er mjög mikilvægt að skoða hvað það var sem kom liðinu alla leið í næst efstu deild og halda áfram að bæta liðið í því sem það þekkir. Það er alveg ljóst að ætli liðið sér einhverja hluti á tímabilinu þarf að hafa gaman, leikgleðin þarf að vera í fyrirrúmi og allir að leggjast á eitt um að gera hlutina vel og með skilvirkum hætti. Þetta tímabil á fyrst og fremst að snúast um að safna stigum með hvaða hætti sem er og vona að útkoman verði liðinu hagstæð. Þetta verður áhugavert tímabil að mörgu leyti og mikilvægt fyrir liðið að byrja vel á heimavelli og setja tóninn fyrir sumarið''
Komnir
Arnór Gauti Úlfarsson frá FH (á láni)
Davíð Júlían Jónsson frá Leikni R. (á láni)
Freyþór Hrafn Harðarson frá Magna
Haukur Darri Pálsson frá Augnabliki
James Dale frá Víkingi Ólafsvík
Michael Kedman frá Englandi
Nikola Dejan Djuric frá KV
Oliver Kelaart frá Keflavík
Pablo Gallego frá Grikklandi
Shkelzen Veseli frá Leikni R. (á láni)
Farnir
Bjarki Björn Gunnarsson í Víking R. (var á láni)
Dagur Ingi Hammer Gunnarsson í Grindavík (var á láni)
Enok Eiðsson
Hubert Kotus í KFK
Marc Wilson í ÍBV
Örn Rúnar Magnússon í ÍH
Sigurður Gísli Bond Snorrason í Aftureldingu
Eins og áður segir spáir Fótbolti.net Þrótturum 12.sæti og þar með falli aftur í 2.deild. Gefum sérfæðingunum orðið.
,,Það er mjög mikilvægt að skoða hvað það var sem kom liðinu alla leið í næst efstu deild og halda áfram að bæta liðið í því sem það þekkir. Það er alveg ljóst að ætli liðið sér einhverja hluti á tímabilinu þarf að hafa gaman, leikgleðin þarf að vera í fyrirrúmi og allir að leggjast á eitt um að gera hlutina vel og með skilvirkum hætti. Þetta tímabil á fyrst og fremst að snúast um að safna stigum með hvaða hætti sem er og vona að útkoman verði liðinu hagstæð. Þetta verður áhugavert tímabil að mörgu leyti og mikilvægt fyrir liðið að byrja vel á heimavelli og setja tóninn fyrir sumarið''
Komnir
Arnór Gauti Úlfarsson frá FH (á láni)
Davíð Júlían Jónsson frá Leikni R. (á láni)
Freyþór Hrafn Harðarson frá Magna
Haukur Darri Pálsson frá Augnabliki
James Dale frá Víkingi Ólafsvík
Michael Kedman frá Englandi
Nikola Dejan Djuric frá KV
Oliver Kelaart frá Keflavík
Pablo Gallego frá Grikklandi
Shkelzen Veseli frá Leikni R. (á láni)
Farnir
Bjarki Björn Gunnarsson í Víking R. (var á láni)
Dagur Ingi Hammer Gunnarsson í Grindavík (var á láni)
Enok Eiðsson
Hubert Kotus í KFK
Marc Wilson í ÍBV
Örn Rúnar Magnússon í ÍH
Sigurður Gísli Bond Snorrason í AftureldinguFyrir leik
Fjölnir
Talsverðar breytingar hafa orðið í Grafarvogi á milli tímabila og mögulega ekki sömu væntingar gerðar í Grafarvoginum um alvöru atlögu að því að fara upp.
Ásmundur Arnarson hætti með liðið að loknu síðasta tímabili og í hans stað var leitað inn á við hjá félaginu og Úlfur Arnar Jökulsson sem verið hefur með 2.flokk félagsins undanfarin ár ráðinn.
Fótbolti.net spáir Fjölni 5.sætinu þetta sumarið og höfðu sérfræðingar okkar Rafn Markús Vilbergsson og Úlfur Blandon þetta að segja um liðið.
,,Fjölnismenn hafa verið frekar slakir í vetur og einungis unnið einn mótsleik. Í bikarnum duttu þeir út gegn Njarðvík í leik þar sem lítið var um að vera hjá þeim. Mikil reynsla er hjá mörgum leikmönnum í hópnum, byrjunarliðið er nokkuð sterkt en hópurinn virkar þunnur. Spurning hvort 5. sætið sé vanmat eða ofmat á stöðu liðsins.''
Komnir
Arnar Númi Gíslason frá Breiðabliki (á láni)
Bjarni Þór Hafstein frá Víkingi Ólafsvík
Guðmundur Þór Júlíusson frá HK
Hákon Ingi Jónsson frá ÍA
Killian Colombie frá Englandi
Reynir Haraldsson frá ÍR
Farnir
Alexander Freyr Sindrason í Hauka (var á láni)
Arnór Breki Ásþórsson í Fylki
Baldur Sigurðsson í Völsung
Eysteinn Þorri Björgvinsson í Hauka
Helgi Snær Agnarsson í ÍR
Hilmir Rafn Mikaelsson til Ítalíu (á láni)
Jóhann Árni Gunnarsson í Stjörnuna
Kristófer Jacobson Reyes í Kórdrengi
Lúkas Logi Heimisson til Ítalíu (á láni)
Michael Bakare til Skotlands
Ragnar Leóssón

Fótbolti.net spáir Fjölni 5.sætinu þetta sumarið og höfðu sérfræðingar okkar Rafn Markús Vilbergsson og Úlfur Blandon þetta að segja um liðið.
,,Fjölnismenn hafa verið frekar slakir í vetur og einungis unnið einn mótsleik. Í bikarnum duttu þeir út gegn Njarðvík í leik þar sem lítið var um að vera hjá þeim. Mikil reynsla er hjá mörgum leikmönnum í hópnum, byrjunarliðið er nokkuð sterkt en hópurinn virkar þunnur. Spurning hvort 5. sætið sé vanmat eða ofmat á stöðu liðsins.''
Komnir
Arnar Númi Gíslason frá Breiðabliki (á láni)
Bjarni Þór Hafstein frá Víkingi Ólafsvík
Guðmundur Þór Júlíusson frá HK
Hákon Ingi Jónsson frá ÍA
Killian Colombie frá Englandi
Reynir Haraldsson frá ÍR
Farnir
Alexander Freyr Sindrason í Hauka (var á láni)
Arnór Breki Ásþórsson í Fylki
Baldur Sigurðsson í Völsung
Eysteinn Þorri Björgvinsson í Hauka
Helgi Snær Agnarsson í ÍR
Hilmir Rafn Mikaelsson til Ítalíu (á láni)
Jóhann Árni Gunnarsson í Stjörnuna
Kristófer Jacobson Reyes í Kórdrengi
Lúkas Logi Heimisson til Ítalíu (á láni)
Michael Bakare til Skotlands
Ragnar Leóssón

Fyrir leik
Lengjudeild í fyrsta sinn í Vogum
Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá leik Þróttar.V og Fjölnis í fyrstu umferð Lengjudeildar karla.


