SKÝRSLAN: Stjarnan fyrsta liðið til að sigra Selfoss
Hvað réði úrslitum?
Leikurinn var kaflaskiptur og hefðu bæði lið geta stolið sigrinum Stjarnan spilaði hins vegar hörku góðan sóknarleik, nýttu færin sín og skoruðu þrjú mörk í dag. Selfoss fór aftur á móti illa með góðar stöður í leiknum sem hefðu getað skilað þeim mörkum.
Bestu leikmenn
1. Sædís Rún Heiðarsdóttir
Sædís var hrikalega góð í dag bæði varnarlega og sóknarlega. Hún gerði vel í uppspili Stjörnunnar og átti margar hættulegar fyrirgjafir en skilaði einnig góðri varnarvinnu.
2. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir
Ingibjörg er ekki alltaf mest áberandi leikmaður Stjörnunar en skilar þó yfirleitt alltaf góðri frammistöðu. Hún var mjög öflug í dag, vann marga bolta á miðjunni og munaði oft á tíðum litlu að hún hefði skorað glæsimark en hún átti margar góðar tilraunir af löngu færi sem hefðu hæglega geta endað í netinu.
Atvikið
Þriðja mark Stjörnunar sem Katrín Ásbjörnsdóttir skorar eftir sendingu frá Sædísi Rún. Leikurinn var frekar jafn og skiptust liðin á að sækja en Katrín siglir sigurinum heim með marki á 87. mínútu og gerir út um vonir Selfoss um að fá stig út úr leiknum.
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan hoppar upp í fjórða sætið eins og staðan er núna og eru með 10 stig eftir 6 leiki. Selfoss er einu sæti ofar í 3. sæti með 11 stig eftir 6. leiki.
Vondur dagur
Það er erfitt að segja eftir skemmtilegan og opin leik þar sem bæði lið spiluðu góðan varnarleik og sóknarleik, ég get ekki gefið varnarmönnum Selfoss þetta þrátt fyrir að hafa fegnið á sig þrjú mörk þar sem þær gerðu mjög vel oft á tíðum í leiknum.
Barbára Sól fyrliði Selfoss er þó líklega svekkt eftir daginn en hún þurfti að fara út af í hálfleik vegna meiðsla.
Dómarinn - 8,5
Flottur leikur, engin vafa atriðið og líklega nokkuð þægilegur dagur hjá Ásmundi í dag.



