Fotbolti.net
Besta deildin
@MistRunarsdottiMist Rúnarsdóttir
Mist Rúnarsdóttir
Besta-deild kvenna
Meistaravellir
KR
KR
1 - 0
Afturelding
Afturelding
Marcella Marie Barberic 87'1 - 0
Dómari: Guðgeir Einarsson
Myndir: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

SKÝRSLAN: Fyrsti sigur KR kom í nýliðaslagnum

Hvað réði úrslitum?

Mark Marcella Marie Barberic réði úrslitum í jöfnum leik þar sem bæði lið ætluðu sér þrjú stig. Baráttan var til staðar á báðum vígstöðum en það vantaði upp á gæði og áræðni á síðasta þriðjungi heilt yfir.

Bestu leikmenn

1. Rasamee Phonsongkham

Rasamee átti sinn besta leik í KR-treyjunni. Var mjög vinnusöm á miðsvæðinu og sýndi að hún er hörkuspyrnumanneskja. Hún átti nokkrar mjög hættulegar sendingar fyrir mark Aftureldingar en liðsfélagar hennar voru ekki nógu grimmar til að gera sér mat úr þeim.

2. Marcella Marie Barberic

Þetta var liðsheildarsigur hjá KR og hægt að hrósa mörgum í liðinu. Marcella skoraði hinsvegar markið mikilvæga sem þurfti til að vinna leikinn og fær þessa nafnbót.

Atvikið

Sigurmark Marcella Marie Barberic. Marcella skoraði af stuttu færi á lokamínútum leiksins. Hún tók laglega á móti sendingu frá Ólínu Valdimarsdóttur og skoraði markið mikilvæga sem tryggði KR fyrstu stig sumarsins.

Hvað þýða úrslitin?

Þetta er risasigur fyrir KR sem sækir sín fyrstu stig í sumar. Liðið jafnar Aftureldingu að stigum og lætur um leið vita að það er ekki tímabært að afskrifa KR í deild hinna bestu.

Vondur dagur

Það bættist enn á meiðslalistann í Mosó þegar hin spræka Jade Gentile þurfti að yfirgefa völlinn vegna meiðsla í fyrri hálfleik. Í stúkunni í Vesturbænum voru að minnsta kosti 8 leikmenn Aftureldingar sem eru frá vegna meiðsla. Vonandi eru meiðsli Jade ekki alvarleg.

Dómarinn - 6

Það voru nokkur atriði sem þarf að skoða betur í endursýningu. Það stærsta kom eftir klukkustundarleik. Þá átti Marcella skot að marki og boltinn virtist kominn yfir marklínuna þegar Auður markvörður Aftureldingar skóflaði honum frá marki.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.