Fotbolti.net
Besta deildin
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Besta-deild kvenna
HS Orku völlurinn
Í einu orði sagt, Bongó
Keflavík
Keflavík
1 - 2
Þróttur R.
Þróttur R.
0 - 121' Murphy Alexandra AgnewDröfn Einarsdóttir 60'1 - 11 - 290' Freyja Karín Þorvarðardóttir
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson

SKÝRSLAN: Toppsætið Þróttar í bili

Hvað réði úrslitum?

Klaufaleg mistök í öftustu línu sem bæði lið gerðust sek um í kvöld. En Keflavík gerði fleiri og því fór sem fór. Það skal þó ekki tekið af liði Þróttar að þær sóttu meira og áttu fleiri skot að marki en voru þó ekki að skapa sér mörg dauðafæri.

Bestu leikmenn

1. Sóley María Steinarsdóttir

Stóð vaktina vel í öftustu línu og náði ásamt liðsfélögum sínum að halda Önu Santos í liði Keflavíkur vel niðri.

2. Murphy Alexandra Agnew

Var hvað líflegust fram völlinn í leiknum í kvöld. Skoraði gott mark og var mikið að reyna eftir það en tókst ekki að finna almennilegar glufur á vörn Keflavíkur. Ágætis leikur þó þrátt fyrir það.

Atvikið

89 mínútur á klukkunni og hár bolti berst inn á teiginn, Samantha í marki Keflavíkur rýkur út í teiginn og ætlar að grípa fyrirgjöfina en misreiknar boltann illilega sem Freyja Karín Þorvarðardóttir nýtir sér og skilar boltanum í netið.

Hvað þýða úrslitin?

Þróttur er á toppnum í að minnsta kosti sólarhring eftir tap Selfoss í Garðabæ. En Þróttur hefur 13 stig stigi á undan Val sem á leik til góða gegn Breiðblik á morgun. Keflavík situr í 7.sætinu með 7 stig.

Vondur dagur

Samantha Leshnak Murphy. Hrikalegt fyrir þennan annars frábæra markvörð að gera dýrkeypt mistök í blálok leiks sem kosta liðið líklega 1 stig.

Dómarinn - 9

Gunnar Freyr átti hreint út sagt frábæran leik að mínu mati. Góð leikstjórn, réttir dómar og yfirferð eins og best verður á kosið. Vel gert!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.