Fotbolti.net
Besta deildin
Eyþór Daði Kjartansson
Besta-deild kvenna
Hásteinsvöllur
ÍBV
ÍBV
5 - 4
Þór/KA
Þór/KA
0 - 19' Sandra María Jessen 0 - 220' Sandra María Jessen 0 - 329' Tiffany Janea Mc CartyKristín Erna Sigurlásdóttir 41'1 - 3Olga Sevcova 45'2 - 3Ragna Sara Magnúsdóttir 52'3 - 33 - 470' Tiffany Janea Mc Carty75' Saga Líf Sigurðardóttir Hanna Kallmaier 77'4 - 4Selma Björt Sigursveinsdóttir 90'5 - 4
Dómari: Guðmundur Ingi Bjarnason
Leik lokið!
Eitthver rosalegasti leikur sem maður man eftir.

Skýrsla kemur inn innan skamms.
ÍBV
90. mín
MAAAARK!

Selma Björt Sigursveinsdóttir (stoðsending: Ameera Abdella Hussen)

Selma skorar eftir að Ameera á skot í stöng.
ÍBV
90. mín
InnHelena Jónsdóttir
ÚtSandra Voitane
ÍBV
87. mín
InnSelma Björt Sigursveinsdóttir
ÚtViktorija Zaicikova
ÍBV
87. mín
InnJessika Pedersen
ÚtKristín Erna Sigurlásdóttir
85. mín
ÍBV fær horn eftir góða sókn.

Það er skallað í burtu.
ÍBV
77. mín
MAAAARK!

Hanna Kallmaier

ÞVÍLÍKT MARK!!!!

Þrumar boltanum í skeitina á D-boganum.
Þór/KA
75. mín
Rautt spjald

Saga Líf Sigurðardóttir

Glæfraleg tækling og beint rautt spjald.

Kemur á fullri ferð og straujar Söndru, smá óheppni en klárt rautt spjald.
ÍBV
73. mín
InnThelma Sól Óðinsdóttir
ÚtÞóra Björg Stefánsdóttir
Þór/KA
70. mín
MAAAARK!

Tiffany Janea Mc Carty

Vinstri fótar skot langt fyrir utan sem fer yfir Guðný.

Guðný verður að gera betur þarna.
65. mín
Ekki mikið að frétta síðustu mínúturnar.

ÍBV að halda boltanum meðan Þór/KA eru að beita skyndisóknum og verjast djúpt á vellinum.
55. mín
ÍBV fær horn.

Harpa nær að grípa það eftir að Andrea skallar boltann upp í loftið.
Þór/KA
53. mín
InnIðunn Rán Gunnarsdóttir
ÚtUnnur Stefánsdóttir
Þór/KA
53. mín
InnHulda Ósk Jónsdóttir
ÚtVigdís Edda Friðriksdóttir
ÍBV
52. mín
MAAAARK!

Ragna Sara Magnúsdóttir

Skorar eftir hornspyrnuna.

Boltinn í slánna og smá darraðadans en boltinn endar fyrir framan Rögnu sem neglir honum inn.
51. mín
ÍBV fær horn.

Boltinn skallaður frá og Júlíana á hörkuskot sem Harpa ver vel.
49. mín
ÍBV fær horn.

En ekkert kemur upp úr því.
48. mín
Kristín Erna á fyrsta skot seinni hálfleiksins en boltinn vel yfir.

Boltinn hrekkur fyrir hana í teignum en hún á slakt vinstri fótar skot.
46. mín
Leikur hafinn
Þór/KA
45. mín
InnKimberley Dóra Hjálmarsdóttir
ÚtHulda Karen Ingvarsdóttir
45. mín
Hálfleikur
Þvílíkur fyrri hálfleikur.
ÍBV
45. mín
MAAAARK!

Olga Sevcova (stoðsending: Þóra Björg Stefánsdóttir )

Það er markaregn á Hásteinsvelli.

Olga tekur þríhyrning með Þóru fer framhjá varnarmanni og setur boltann yfir Hörpu með smá hjálp frá Örnu sem reyndi að komast fyrir skotið en fékk boltann í bakið og inn.
ÍBV
41. mín
MAAAARK!

Kristín Erna Sigurlásdóttir (stoðsending: Olga Sevcova)

Kristín skallar aukaspyrnuna í netið á. Mjög einfalt.
40. mín
Olga krækir í aukaspyrnu í fyrirgjafastöðu.
38. mín
ÍBV fær horn.
Þór/KA
29. mín
MAAAARK!

Tiffany Janea Mc Carty (stoðsending: Saga Líf Sigurðardóttir )

Skyndisókn númer 3 mark númer 3.

Sama og hin mörkin, Saga setur Tiffany í gegn sem klárar vel.
Þór/KA
20. mín
MAAAARK!

Sandra María Jessen (stoðsending: Saga Líf Sigurðardóttir )

Nákvæmlega sama uppskrift og síðast.

Bolti í gegn og Sandra fer framhjá Guðný.
18. mín
Ameera með gott skot en Harpa blakar boltanum yfir.

Hornið er skallað í burt. En Olga nær boltanum og prjónar sig í gegn og á sendingu fyrir markið sem Andrea Mist nær að pota útaf. ÍBV óheppnar að vera ekki búnar að skora.
15. mín
Ameera með skot en enn og aftur er það beint á Hörpu.
Þór/KA
9. mín
MAAAARK!

Sandra María Jessen (stoðsending: Vigdís Edda Friðriksdóttir)

Fyrsta sókn Þórs/KA endar með marki. Vigdís setur Söndru í gegn sem fer framhjá Guðný og rennir boltanum í gegn.
8. mín
ÍBV klárlega að byrja þennan leik betur. Fín sókn sem endar með skoti Olgu beint á markið.
4. mín
Júíana nálægt því að setja draumamark annan leikinn í röð en Harpa slær boltann yfir.

Ekkert kemur úr horninu.
3. mín
Olga Sevcova á fyrsta skot leiksins en hátt yfir fer boltinn.
1. mín
Leikur hafinn
Þá er þetta farið í gang.

Það eru heimakonur sem byrja með boltann og sækja í átt að dalnum.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn. ÍBV gerir 1 breytingu á sínu liði Þóra Björg kemur inn fyrir Helenu Jónsdóttur.

Þór/KA gera 3 breytingar Ísfold Marý, Hulda Karen og Vigdís Edda koma inn fyrir þær Iðunni Rán, Huldu Björg og Kimberley Dóru.
Fyrir leik
Liðin mættust á Hásteinsvelli í 1. umferðinni á 4. maí á síðasta ári. Þá vann Þór/KA 1 - 2.

Seinni leikurinn fór fram 11. júlí á Akureyri og þá gerðu liðin 1 - 1 jafntefli.
Fyrir leik
Guðmundur Ingi Bjarnason er dómari leiksins í dag og er með þá Bjarna Víði Pálmason og Hrein Magnússon sér til aðstoðar á línunum.

Enginn skiltadómari eða eftirlitsmaður mætir til eyja í þetta skiptið.
Guðmundur Ingi Bjarnason dæmir í dag.
Fyrir leik
ÍBV vann góðan sigur á Breiðabliki á útivelli í síðustu umferð 0 - 1 en á sama tímag tapaði Þór/KA 4 - 1 gegn Þrótti á útivelli.

Ljóst er að liðið sem vinnur leikinn í dag verður ofan í stöðutöflunni. ÍBV er í 7. sæti með 7 stig úr fyrstu 5 umferðunum, en Þór/KA í 8. sæti með 6 stig.
Fyrir leik
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá viðureign ÍBV og Þórs/KA í Bestu-deild kvenna.

Leikurinn hefst klukkan 18:00 á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.